Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 48
240
ÍSLENSKUR HÁSKÓLI
eimreiðiN
gæti tekið hana til þessara nota. Þessi áætlun mætti þó mót-
spyrnu meðal kennara, einkum frá Magnúsi Jónssyni o. fl.
Næsta mynd er einnig eftir hr. Guðjón Samúelsson, og af
háskólanum eingöngu. Er gert ráð fyrir því, að það stæði við
Tjarnarendann sunnanverðan, austanmegin, andspænis skemti-
garði þeim, sem var ráðgerður endur fyrir löngu. Er framhlið
þess húss áætluð um 50 metra löng og húsið um 10 m.
breitt, nema tvær álmur, um 10 m. langar, út úr því við sitt-
hvorn enda, og þriðja álman, eða útbyggingin, aftur úr því
miðju, um 20 m. löng og c. 16 m. breið. Átti þar að vera
hátíðasalur skólans og anddyri hans. Annars áttu að vera á
1. hæðinni, auk ganga o. sl., stór fyrirlestrasalur, bókasafn (og
lesstofa), 3 kenslustofur, skrifaraherbergi og 2 kennarastofur,
en á stofuhæðinni 2 kenslustofur, 8 tilraunastofur o. fl.
Loks er svo síðast mynd hr. Einars Jónssonar myndhöggv-
ara. Á uppdrættinum sést að eins framhliðin, aðalhliðin, en
húsið, eða húsagarðinn, á að reisa í jafnhliða ferhyrningi, og
komi 5 turnhús, eins og á myndinni sjást, á hvert hornanna.
En milli þeirra eru hliðarnar með ýmsu sniði, og fæst í raun-
inni ekki fullkomin hugmynd um það, hvernig byggingin í
heild sinni er hugsuð, nema þær sjáist allar, ásamt grunn-
flatarteikningunni, þó þess sé, því miður, ekki kostur hjer að
sýna það. Þessi bygging á að standa hátt í Skólavörðuholtinu,
og er þar bæði háskóli og stúdentabýli, og sömuleiðis íbúðir
fyrir kennara. Eru íbúðarherbergin einkum í turnhúsunum,
en kenslustofur, fyrirlestrarstofur, tilraunastofur fyrir allar
deildir, bókastofur, lestrarstofur, kennarastofur, söngstofa, íþrótta-
salir, borðsalir, gangar og hvelfingar ýmsar í hinum hlutunum,
og auk þess stór og hár hátíðasalur í aðalhúsinu og borð-
stofur, eldhús, búr o. sl. í sambandi við íbúðirnar. Garðar eru
einnig ráðgerðir í sambandi við þetta hús. Og eins og nokkuð
má sjá af uppdrættinum, er einnig ætlast til þess, að það verði
margvíslega myndskreytt, bæði utan og innan.
Annars er ekki unt að gera hér nánari grein fyrir uppá-
stungunum í einstökum atriðum, enda ekki gott að átta sig á
þeim, nema teikningarnar séu við hendina. En við allar mynd-
irnar hafa einnig verið gerðir meira eða minna nákvæmir
skipulagsuppdrættir og mælingar í mörgum hlutum. En mynd-