Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 34
226
TVÍSONGSLISTIN Á ÍSLANDI
eimreiðim
d. Hælir því hver í heiminum, sem hefir á lyst — eg
hrósa mínum Jesú Krist, (séra Olafur á Söndum).
Fyrsta sálmi Davíðs og hirðissálmi hans hefir verið snúið
í söngvísur undir þessu lagi eða bragarhætti af ýmsum
skáldum, (séra Jóni Þorsteinssyni, séra Olafi Einarssym í
Kirkjubæ í Hróarstungu, bróður Odds biskups (f 1659)
(sbr. nr. 643. 4 í safni J. S.).
7. / þinni ógnabræði. (6. sálmur Dvs.). Þessi sálmur séra
Odds stendur í gömlu ísl. sálmabókum (allur), og var því
sunginn með sínu lagi.
8. Guð er minn hirðir. (23. sálmur Davíðs.) Undir þessu
lagi hefir hvert skáldið af öðru ort lofgjörðarvísur um
Krist.
a. Til þín trúfasti trygðavinur, Jesús, (séra Stefán ÓlafssonV
b. í náðarnafni þínu nú vil eg sofna, Jesú, (séra Hallgrímur).
c. Sæll, Jesú sæti, sól og föður ljómi, (séra Magnús Olafs-
son í Laufási (+ 1636).
d. Ein kanversk kona, (í sálmabókinni (1671).
Þegar á alt þetta er litið, þá er ekki ofmælt, að sálmar
Lobwassers hafi ekki ófyrirsynju borist hingað og komist í
hendurnar á séra Oddi, og er hér þó víst fæst talið af þeim
sálmum og andlegum ljóðum, sem eiga til þeirra rót sína að
rekja. Það, sem hér er talið, er að eins bending til þeirra^
sem kynnu að vilja athuga þetta mál betur og hafa betri tök
á því en eg.
Séra Oddur var víst rétti maðurinn til að færa sér og öðr-
um þetta fræga söngrit og sálma í nyt. Honum virðist hafa
legið mjög á hjarta að láta hæfileika sína og fróðleik verða
þjóðinni til blessunar. Það kom fram í fleiru enn þessu. Hann
var talinn heppinn læknir á sínum tíma, og þá læknislist sína
hafði hann í fyrstu numið af enskum lækni (bartskera), sem
var vetursetumaður í Skálholti. Sagt er, að Oddi hafi tekist
vel að lækna sárasótt þá, sem lengi var búin að vera landlæg
hér. Og honum nægði eigi, að hann væri læknir sjálfur, held-
ur kendi hann læknislist sína Jóni Sigurðssyni í Káranesi í
Kjós, fóstursyni sínum, (sbr. eftirmæli séra Hallgríms Péturs-
sonar um Jón, í kvæðum hans). Síðan kendi Jón Oddi sym
sínum, er síðar varð prestur að Reynivöllum (fórst í snjóflóði