Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 49
EIMREIÐIN
ÍSLENSKUR HÁSKÓLI
241
■rnar ættu þó að vera betri en ekkert, til þess að fólk gæti
séð aðalsvip bygginganna og kynst því nokkuð, af þessari
stuttu lýsingu, hvað höfundarnir hafa álitið að til slíks húss
fc’Yi'fti, þó ýmsu megi sjálfsagt breyta, eftir smekk hvers eins,
°2 stækka og auka, ef þurfa þykir. Kostnaðaráætlun fylgir þó
ekki, enda væri slíkt árangurslítið nú, þar sem kostnaðurinn
er sífeldum breytingum og byltingum háður, og sjálfsagt verður
ekki ráðist í framkvæmdir, nema tímarnir séu álitnir fjárhags-
'e2a heppilegir, og betra að bíða árinu lengur, en að fá hús,
sem ekki er til frambúðar og enginn er ánægður með, þegar
UPP er komið. Enn fremur vil eg geta þess, að Guðm. pró-
fessor Hannesson hefir fyrir nokkrum árum flutt erindi í
stúdentafélagi háskólans út af 3. uppdrættinum, og Ág. H.
Bjarnason sýnt helstu myndirnar og talað hvatningarorð um
málið á 50 ára afmæli stúdentafélags Reykjavíkur. Sömuleiðis
rr>un háskólaráðið hafa sent alþingi ávarp um málið fyrir fá-
Unr árum. Annars eru það einna helst yngri stúdentarnir, sem
kafa verið að reyna að halda málinu vakandi, enda næst
fceim. (Jm áramótin 1920 var það t. d. allmikið rætt. Var þá
kosin nefnd í stúdentafél., til þess að reyna að brjótast eitt-
hvað í þessu.1) Árinu áður hafði því einnig verið hreift í há-
skólafél. í sambandi við annað mál, náskylt. í bæði þessi skifti
skrifaði eg dálítil bréf um málið til þingsins, og set eg hér
siflákafla úr þeim: Eins og kunnugt er, hafa alþingi og há-
skólinn nú sameiginlegt húsnæði að nokkru leyti. En alþingis-
húsið er auðvitað reist eingöngu með þarfir alþingis og starf
fcess fyrir augum, og allri skipun þess hagað eftir því. Það
^á þess vegna telja neyðarúrræði, að háskólanum var fengið
k>r húsnæði, og það gat í eðli sínu ekki verið annað en
hráðabirgðarákvæði. — »Einkum hefir þetta — húsnæðisþrengslin
1 sambýlinu — komið fram, að því er háskólann snertir, þannig,
að ýmsar kenslugreinir, sérstaklega í læknadeildinni, hafa svo
ah segja verið á sífeldum vergangi og hrakningum«, — þess
Ue9na er »háskólanum það brýn nauðsyn, að eiga sitt eigið
Us. sniðið eftir þörfum hans og kröfum. Hann þarf þess til
r) Árangur varð enginn þá, en seinna varð komið upp mötuneyti stú
nia. sem sjálfsagt yrði í framtíðinni einn liður stúdentabýlisins.
16