Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 29
eimreiðin
TVÍS0NGSLISTIN Á ÍSLANDI
221
sögu, sem til er á íslensku, og jafnframt hið eina, sem til er,
enn sem komið er.
Af formála þessum má ráða, að biskupar hafi þess vegna
ráðist í útgáfu bókar þessarar, að kirkjusöngurinn hafi mjög
verið kominn á ringulreið og söngmenn hafi verið farnir að
fara í tvísöng í sjálfum höfuðkirkjunum. Um það fer biskup
svofeldum orðum:
Enginn skyldi ætla, að vér löstum þá sönglist, sem vér
köllum diskant, er tíðkast hjá sumum, ásamt öðru góðu bók-
næmi, því að hún er Guðs gjöf og nytsöm fyrir sig; en annar
söngur hentar betur í kirkjunum, sökum alþýðunnar.
Að hinu sama mun og lúta sú viðvörun biskups: Að menn
■skuli eigi hafa meira við í söng en hóflegt sé, og sýni þar
eigi fordild sína með margslungnum hljóðum og »klýnku-
nótum« og annari hljóðaumbreytni, er leiði það af sér, að
þeir, sem standa hjá og hlýða á, fái eigi skilið orðin (þ. e.
tekstann, sem sunginn er), vegna þess hreims, sem verður af
þeim hljóðum og missöng. Og enn fremur segir hann: Nót-
Tirnar og tónarnir eiga að þjóna orðunum, en orðin eru eigi
■gerð fyrir tónana.
Þessi lýsing kemur vel heim við það, sem sagt er hér að
framan um margraddaðan diskant-söng.
Og síðast segir hann: Hér með vil eg svo áminna og um-
biðja alla góða kennimenn, að þeir láti þá eina syngja þessa
sálma (þ. e. sálma Grallarans), sem hafi góða hljóðagrein til
þess, svo að hin heilaga lofgjörð verði vönduð sem best, og
sé eigi sem hróp og köll og hrinur drukkinna manna, þá er
sitt syngur hver, því að slíkt er Guði fremur til vanheiðurs og
stygðar, en sannrar lofgjörðar á kristilegri samkomu.
Séra Oddur Oddsson hinn gamli, síðast prestur að Reyni-
völlum í Hjós (t 1649), er frægastur allra lagfræðinga á dög-
uni Arngríms lærða. Hann hafði gengið í Skálholtsskóla á
éögum Gísla biskups og numið sína lagfræði þar. Síðan var
hann lengi kirkjuprestur í Skálholti (1589—1602); naut hann
mikillar hylli hjá Oddi biskupi, því að séra Oddur var há-
lærður klerkur, og þar átti hann góðan að, sem Oddur biskup
yar, svo í sönglist sem öðrum listum og fræðigreinum.
Séra Oddi er talið það til frægðar, að hanu hafi snúið