Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 46
238
ÍSLENSKUR HÁSKÓLI
eimreiðW
»kritik«. En eins víst og það er, að háskólinn nú má og á
að fá gagnrýni — eins víst er það, að hann og þjóðin, — á
heimtingu á því, að sú gagnrýni stefni að því að byggja upp,
en ekki að hinu, að rífa niður. Eins og eg tók fram áður,
ætla eg hér ekki að ræða mikið um »innri« mál háskólans í
einstökum atriðum — en eg ætla að tala um þau »ytri« —
tala um það beinlínis í bókstaflegum skilningi, að byggja upp
háskólann.
Þvi háskólann vantar hús.
Og þetta er mikilsvert undirstöðuatriði í öllum málum hans-
Þegar menn ræða um háskólann nú, þá gleyma menn þessu
oft, — gleyma því, að háskólinn lifir á einskonar útigangi eða
vergangi, gleyma því, að hann á ekki þak yfir höfuð sér,
gleyma því, að honum hafa ekki verið fengin þau skilyrði
öll, sem til þess þarf að fullnægja því, sem af honum á að
krefjast.
Þetta er ekki nýmæli í sjálfu sér, að hér vanti háskólahús
og stúdentabýli, þó einhverjum kunni að finnast það »mjöS
yfirgripsmikið og stórtækt«. Til þess að sýna mönnum, að
einstaka maður hafi þó eitthvað um það hugsað, hefi eg fengið
alla þá uppdrætti, sem eg veit til að gerðir hafa verið af há-
skólahúsi og stúdentabýli, og er nokkuð af því prentað hér
með. Geta menn af þessum myndum gert sér nokkra hug-
mynd um svip og skipulag háskólahúsanna, sem stungið hefir
verið upp á, en þó, því miður, ekki alveg. Til þess þyrfti að
prenta alla uppdrættina í einstökum atriðum, en til þess er
ekki rúm. Fyrsta myndin er eftir enskan byggingafræðing,
teiknuð skömmu fyrir aldamótin (1897). En hún mun hafa
þótt nokkuð umsvifa- og viðamikil, og stíllinn ekki sem best
viðeigandi hér, sögðu menn. Næstu myndina gerði svo hr.
Rögnvaldur sál. Olafsson. Gerði hann ráð fyrir því, að há-
skólinn yrði reistur í einskonar íslenskum bæjastíl, að sínu
leyti svipuðum og nú er á Jóns Þorlákssonar húsunum svo
nefndu í Reykjavík og á sveitabæjafyrirmyndum Guðm. Hann-
essonar og Raavad’s. Þetta hús er ráðgert að eins fyrir skól-
ann sjálfan, ekki stúdentabýli. Lengd framhliðarinnar var um
45 m. og aðalhæðirnar tvær. Á neðri hæðinni var anddyrir
stórt, 4 kenslustofur, 2 kennarastofur, skrifstofa, tvær tilrauna-