Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Side 7

Eimreiðin - 01.09.1922, Side 7
eimreiðin UPPELDI OG SKÓLAR 199 ast við það, heldur einnig vinnuvilji og leikni í handbrögðum. Einföld vel æfð grundvallarhandtök mundu verða börnunum dýrmætur fjársjóður í lífinu, hvaða störf sem þau hefðu á hendi. Vinnan gæti stutt mjög aðrar námsgreinir, t. d. móðurmálið, eðlisfræði, náttúrusögu, reikning o. fl. Það er furðulegt, að mentamálanefndin skuli ekki hafa séð sér fært að gera neinar kröfur til skólanna í þessu efni. Það sem um getur í 10 lið 2. gr. fræðslulagafrumvarpsins er ekki stílað til skólanna beinlínis, heldur til heimilanna og mundi í framkvæmdinni verða gagnslaust með öllu. Virðist mér þó svar séra Einars Pálssonar í Reykholti veigamikið. Hann segir: (bls. 30). »Eitthvað einfalt og gagnlegt, en annars nokkuð óákveðið sitt fyrir hvern, því að eitt barnið kann þetta og annað hitt. Nefna má að kenna að þvo sér hátt og lágt, og hirða hár, tennur, neglur, þvo (föt, gólf, leir) og bæta, prjóna, hrýna, tálga, reka nagla, nota sporjárn og sög og þjöl, hefla 03 búa til smáhluti, strika pappír 0. s. frv«. Kostnað nokkurn mundi vinnukensla hafa í för með sér í byrjun, því að ný kensluáhöld yrði að fá og ef til vill stækka húsakynni sumstaðar. En með hagsýni og sparnaði mætti draga úr kostnaðinum. Mætti t. d. smíða þannig gerð skóla- borð, að þau gætu verið vinnuborð og áhaldaskápur barnanna lafnframt því að vera skrifborð. Gæti þá vinnukensla farið fram í sömu stofu og önnur kensla. Kostnaður við kensluna Vkist að vísu nokkuð, en ekki væri víst að endilega þyrfti að (á nýja fastakennara til sérhvers skóla, því bæði mundu sumir kennarar, sem nú eru starfandi, geta kent ýmislegt verklegt, sem börn hefðu gott af að læra, og í flestum kauptúnum eru •ðnaðarmenn, sem gætu kent hver sína iðngrein með aðstoð aðalkennarans. Af því, sem kent yrði, má fyrst og fremt nefna smíði úr tré, heini, horni og e. t. v. blikki, viðgerð ýmsra hluta t. d. skóa, bókband, bastvinna, prjón, viðgerð fata, saum einfaldra flíka fl. 0. fl. Haganlegast hygg eg alls vegna, að taka eitt fyrir 1 einu, t. d. 1—2 mánuði í senn og leitast við, að gera börnin fær um að leysa eitthvað af hendi á eigin spítur. Þess skyldi °9 vandlega gæta að láta börnin fást við það, sem getur orðið að Sagni, en ekki eitthvert fitl út í bláinn.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.