Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 19

Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 19
ElMREIÐIN BLÓMIN OG VEÐRIÐ 211 lognið og blíðuna, en það mundi gilda þau lífið; að morgni niundu þau öll fölnuð. En gengur þá ekki slagviðrið og rokið af þeim dauðum eða lömuðum fil sfórra muna? — Nei, nei, ef sólskin og logn er að morgni, þá er eins og ekkert hafi í skorist, alt búið og Sleymt; jafnvel aldrei aðra eins dýrð að líta í blómabygðinni e'ns og einmitt þá. Það sem við hefðum getað hugsað að yrði til eyðileggingar, það er eins og það hafi orðið til hressingar. í rokinu, sem sveigði þau til jarðar, hristi þau og skók, og sveiflaði þeim 1 hring á veika stönglinum, í þessum stormi fauk ýmislegt, sem ^ast átti að heita og sterkt var talið, en litlu veiku blómin þrostu aldrei hýrara við sólu en morguninn eftir illviðrið. Eiga þau þá nokkur ráð gegn slíkum ósköpum, eða hvaða hulinn verndarkraftur hlífir þeim gegn ofbeldi stórviðranna og s^eypiregnsins? ^ið skulum fyrst minnast þess, að blómin eru orðin gömul, °9 margt lærist á langri leið. Stríð þeirra við storm og regn er hvorki sjö ára eða þrjátíu ára stríð; það er stríð, sem staðið hefir um hundruð þúsunda, já, miljónir ára. Eg veit ehhi hvort blómunum hefir nokkurntíma »dottið í hug« að hjóða vindi og regni byrginn, en þau hafa í öllu falli horfið því og tekið hina stefnuna: að láta síga undan ofureflinu, en halda þó sínu. Blómin hafa gegnum óraaldir tímans lært af lífinu, að taka þv> sem að höndum ber og haga sér eftir kringumstæðunum, hreiða sig út og brosa blítt er logn er á grund og sól skín í heiði, en draga sig saman, fela skraut sitt, drúpa höfði er sYrtir í lofti. Et þau mættu mæla mundu þau, eftir háttalagi þeirra að ^ærna, segja við storminn og regnið: Eg veit að þið eruð sterkari en eg; eg get ekki bannað ykkur að koma og rugga rner og sveifla til og frá og ausa mig vatni; eg get heldur ehhi farið, mig er hér því alt af heima að hitta; en þegar þið °miö, þá löka eg, fallegu gullin mín fáið þið ekki að sjá eða shemma. Þið farið bráðum aftur, það dregur úr ykkur allan þá koma sólargeislarnir, mínir góðu gestir aftur, og fyrir Þeim lýk eg upp brosandi.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.