Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1922, Page 41

Eimreiðin - 01.09.1922, Page 41
EIMREIÐIN ÍSLENSKUR HÁSKÓLI 233 °f hljótl. Manni finst stundum, eins og háskólinn hafi ekki náð öllum þeim tökum á þjóðinni, sem búast hefði mátt við af slíkri stofnun, og finst eins og þjóðin sjálf ali ekki til hans þær tilfinningar, sem æskilegt væri — finst eins og áhuginn á málurn hans og andrúmsloftið í kringum hann sé ekki eins °2 nauðsynlegt er veikri, en vaxandi stofnun, sem á að vera ®ðsta uppeldisstofnun eins meginhlutans af verðandi leiðtogum hióðarinnar, og helsta miðstöð fræðastarfsins inn á við og glæsilegasti opinberi fulltrúi ísl. menningar út á við. Því það er enginn efi á því, að þetta á hann að vera, há- skólinn. »Hver háskóli fyrir sig má heita borgari í hinni miklu respublica scientiarum« sagði dr. Björn M. Olsen, fyrsti rektor háskólans, í setningarræðu sinni. Og meira sagði hann. Hann sagðist vona, að háskólinn yrði »gróðrastöð nýs mentalífs hjá bjóð vorri, meira að segja að hann geti lagt sinn litla skerf til beimsmenningarinnar, numið ný lönd í ríki vísindanna, í sam- yinnu við aðra háskóla«. En það er oftastnær auðvelt að vona. Hitt er erfiðara, að vona vel og erfiðast að láta vonirnar rætast. En það er þó Wergurinn málsins. Tíminn er að vísu stuttur sem háskólinn hefir enn þá starf- að, stuttur á mælikvarða háskólans, en þó alllangur á æfi- bvarða þeirra, sem við hann starfa. Hvað hefir þá verið starfað? Vitanlega hafa verið útskrifuð svo og svo mörg einbættis- og önnur starfsmannaefni handa þjóðinni, á sama hátt og embætta-skólarnir gerðu áður. Og það hefir sjálfsagt verið vel gert. Þessar deildir háskólans þykja yfirleitt góðar, Hiðað við það skipulag, sem á þeim er, og kandidatar frá beim hafa yfirleitt getað staðið jafnfætis stallbræðrum sínum ^ra öðrum stærri háskólum, þar sem á það hefir reynt. Og benslukraftar þykja þar líka yfirleitt góðir, og sumstaðar ágætir, bó auðvitað þyki vanta kennara í ýmsum greinum, ef vel ætti að vera. En þarna er í rauninni ekki um að ræða nema einn báttinn í starfseni háskólans. Honum var ætlað að vera »vís- 'ndalegri rannsóknarstofnun og vísindalegri fræðslustofnun«, avh þess sem hann átti að veita embættismannaefnum undir- úningsmentun. Og enn að auki segir dr. B. M. Ó., í fyr- nefndri ræðu sinni, að »hver sæmilegur háskóli víkki sjón-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.