Eimreiðin - 01.01.1939, Blaðsíða 24
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
1 0
57 752 170, eru sjávarafurðir fyrir kr. 48 529 070. Sést af þess-
um hlutföllum hversu sjávarútvegurinn er mikilvæg atvinnu-
grein vor íslendinga og hve mikið er undir því komið fyrir hag
vorn út á við, að sú atvinnugrein nái að blómgast og bera sig
sem bezt framvegis. En eins og stendur er útgerðin yfirleitt
rekin með tapi, og hefur afkoma hennar i engu batnað á liðna
árinu, þrátt fyrir mikla framleiðslu. Stafar þetta meðal annars
af hinum mikía útgerðarkostnaði miðað við verðlag yfirleitt.
Eins og áður er getið var heyskapartíð yfirleitt hagstæð
sumarið 1938 og nýting heyjanna góð. Sauðfé gekk vel fram
og varð óvenjulega vænt til frálags. Slátrað var
Landbúnað- alls til sölu, bæði innanlands og utan, 352 600
urinn. dilkum og um 20 000 af fullorðnu fé, en árið 1937
396 000 dilkum og 45 000 fullorðnu. Verð á salt-
kjöti, sem út var flutt, mun hafa verið 110 kr. tunnan eða um
10% hærra en 1937. Verð á brezkum markaði fyrir íslenzkt
freðkjöt lækkaði aftur á móti um 10% eða ofan í ca. 90 aura
kg. Verð á ull og gærum var hvorttveggja lægra en árið áður.
Mjólkurframleiðslan jókst enn allverulega á liðna árinu. Árið
1936 var hún alls á landinu 14 660 000 lítrar, árið 1937 15 560-
000 lítrar, en árið 1938 17 230 000 lítrar.
Garðyrkja varð nokkru meiri en árið 1937. Kartöfluupp-
skera er talin að hafa orðið 60 000 tunnur. Ræktun græn-
metis fer alment vaxandi, en skýrslur vantar um þá fram-
leiðslu. Garðrækt við jarðhita eykst óðum, og er talið að
verðmæti þeirrar framleiðslu hafi á síðastliðnu ári numið
um 400 þús. krónum. Al' tómötum eingöngu nam framleiðslan
um 40 tonnum. Kornyrkjan, sem að vísu er á tilraunarstígi,
var stunduð á nokkrum stöðum. A Sámsstöðum í Fljóts-
hlíð varð korneftirtekjan 16—22 tunnur á hektara. Ýmis-
konar aðrar ræktunartilraunir hafa verið gerðar með góð-
um árangri.
Verðlag á landbúnaðarafurðum mun yfirleitt hafa orðið
heldur lægra en árið 1937. Nam útflutningur þeirra 8,6 milj.
kr. á árinu samkv. bráðabirgðaskýrslum, en um 10 milj. kr. á
árinu 1937 samkv. sömu skýrslum.
Loðdýralánadeild Búnaðarbankans tók til starfa haustið 1937
og hafði um síðustu áramót veitt 41 lán alls að upphæð kr.