Eimreiðin - 01.01.1939, Blaðsíða 126
112
SVEFNFARIR
eimreiðin'
en vísifingurna. Þeir reyna
allir eins og þeir geta, en kom-
ast vanalega fljótt að raun um
það, að maðurinn er of þung-
ur til þess að honum verði lyft
á þenna hátt. Þá sleppa þeir
tökunum og draga djúpt and-
ann, að sér og frá sér allir
samtaka, og þegar þeir hafa
æft sig' þannig nokkrum sinn-
um, draga þeir loks allir djúpt
að sér andann og halda hon-
um niðri í sér, um leið og þeir
taka með vísifingrunum, á
sama hátt og áður, undir hol-
hendur og hné manninum á
stólnum og gera allir samtaka
tilraun til að lyfta honum. Og
þeim tekst þá í raun og veru
— og það auðveldlega — að
lyfta manninum upp af stóln-
um.
Hvernig stendur nú á því að
þyngd mannsins breytist eða
virðist gera það? Þyngd
mannsins breytist í rauninni
alls ekki neitt, og sjálfur þarf
hann ekki að taka neinn þátt
i öndunaræfingum hinna,
heldur fá þeir aukinn kraft
við þær, og lcemur þessi vís-
indalega staðreynd oft að
góðu haldi við ýmsa daglega
vinnu, eins og t. d. þegar verið
er að færa til stór húsgögn eða
aðra þunga hluti. En hvaðan
kemur þá þessi kraftur? í
hvert skifti sem maður dregur
djúpt og reglulega andann og
hugsar um leið um eitthvað
ákveðið, kemst á samband
milli geðheims og skynheims
vors þannig, að hugsunin fæi'
samstundis á sig ákveðið mót
eða gerfi. Þannig gerist það í
dæminu hér á undan, að þeg-
ar mennirnir anda samtaka
og hugsa samtaka um að
lyfta manninum á stólnum og
einbeita huganum öfluglega,
með þeirri aðferð sem lýst
var, að þessu marki, þá klæð-
ist þessi hugsun þeirra í ak-
hasa, en það ©r orka, sein
hægt er að draga út frá geð-
líkaina vorum og beita á hlut-
ina eða persónuna, sem á að
lyfta.
Þú verður að læra að skilja
skyldleika tilverunnar við
skapara sinn, skilja, að alt,
sem er raunverulegt, er frá
guði. Ef þú vilt öðlast krtana
kanda eða sanna þekkingu,
verðurðu að vera reiðubúinn
að varpa fyrir borð þeirri trú,
að alheimurinn sé gerður úr
fjarskyldum efnum, því slík
trú er einhver hættulegasta
reginvilla mannshugans, sem
veldur öðrum villum cg
blekkingum í stóruin stíl-
Hafirðu sigrast á þessari trú,
þá ertu orðinn hæfari en áð-
ur til að losna undan blekk-
ingum skynheimsins.