Eimreiðin - 01.01.1939, Síða 28
M
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
Maimfjöldi í kaupstöðum var:
Arsbyrjun 1937: Ársbyrjun 1938:
Reykjavík .... 35 300 36 103
Hafnarfjörður 3 676 3 673
ísafjörður 2 671 2 651
Siglufjörður 2 638 2 700
Akureyri 4 519 4 674
Seyðisfjörður 950 939
Neskaupstaður 1 165 1 150
Vestmannaeyjar 3 473 3 480
Hér er mannfjöldi i Hafnarfirði og Vestmannaeyjum í árs-
byrjun 1937 talinn nokkru lægri en í ársyfirlitinu 1937 (sjá Eim-
reið 1938, bls. 8), og er það samkv. nýjustu tölum Hagstof-
unnar (sbr. Hagtíðindi 1938, 6. tbl.).
Að lokum má geta þess, að snemma á árinu 1938 var endan-
leg ákvörðun tekin um, að islenzka þjóðin yrði þátttakandi í
heimssýningunni miklu í New York á vfirstandandi ári, og
hefur undirbúningur undir þessa þátttöku vora staðið yfir
undanfarna mánuði. Er þetta í fyrsta skifti sem íslenzka ríkið
tekur sjálfstæðan þátt í almennri sýningu, sem til er stofnað
fyrir allar þjóðir heims.
r
Astin er undarleg' stundum.
iVýlega fanst prentari einn, Ferenc Szabo a<5 nafni, mefSvitundarlaus á
götu i Budapest. I>að tókst að lifga hann við, og skýrði hann þá lögregl-
unni svo frá, að liann hefði sett upp nafn og utanáskrift unnustu sinnar,
sem bafði verið honum ótrú, gleypt alt góðgætið — 57 bókstafi, tvær
kommur og eiiia semikommu — skolað öllu niður með potti af veikri
eilurblöndu, til þess að eiga auðveldara með að kingja.
Þegar skáldið William Congreve dó, lét ástmey hans, Henrietta her-
togafrú af Marlborough, gera af honum vaxlikneski í fullri likamsstærð,
nákvæmlega eins og Congreve leit út i lifanda lífi, og klæða likneskið
sömu fötum og hann hafði gengið i. Likneskið lét hún sitja til borðs
með sér og taiaði við það öllum stuiidum. Öðru hvoru lét hún líflækni
konungs skoða fætur iíkneskisins og veita þvi aðgerð við liöagigt, en
Congreve liafði í lifanda lifi þjáðst af liðagigt i fótunum.
(Reader's Digest, febr. 1939).