Eimreiðin - 01.01.1939, Qupperneq 64
EIMREIÐIN
r
A aðalstöðvum Brezka útvarpsins.
Það var fyrir tilboð eins vinar mins um að láta mér í té
meðmælabréf til Brezka útvarpsins, að ég fór á fund þess á
aðalstöðvunum, við Langham Place, W. 1, í London, 14. sept-
ember síðastliðinn. Sannast að segja var þetta hálfgerð til-
viljun, því hefði mér ekki boðist þetta meðmælabréf, þá hefði
mér líklega aldrei dottið í hug að fara að ónáða þessa stofnun.
En að hafa meðmælabréf í Bretlandi er sama og að eiga vísar
opnar allar dyr hjá þeirri stofnun, sem bréfið er til. Mér fanst
ég því iekki geta látið tækifærið ónotað. Enda reyndist það
svo, að þegar ég hafði skilað bréfinu, var mér tekið með þeirri
hlýju ahið og prúðmensku, sem einkennir brezka menningu.
Mér var fenginn leiðsögumaður um hina miklu byggingu, og
rejmdist hann hinn ágætasti í alla staði, enda var hans aðal-
starf að sýna blaðamönnum úr öllum álfum heims, sem þarna
koma, hin miklu salakynni útvarpsins, hina mörgu útvarps-
sali (studios) og skýra fyrir þeim rekstur þessa risavaxna
fyrirtækis og starf. Og af því ég get hugsað mér, að lesend-
ur Eimreiðarinnar hefðu áhuga á að fregna um þenna stóra
„colIega“ okkar eigin útvarps, vil ég rekja hér i stuttu máli
það helzta af því, er ég fræddist um þessa þrjá tíma, sem
ég dvaldist þarna í Broadcasting House, Langham Place. W. L
Brezka útvarpið (British Broadcasting Corporation, skamm-
stafað B. B. C., frb. Bí, Bí, Sí) hefur einkarétt á allri útvarps-
og sjónvarps-starfsemi til ahnennings í Stóra-Bretlandi og
Norður-írlandi. Það er almenningsstofnun, til orðin með kon-
unglegu leyfisbréfi, en hvorki ríkisfyrirtæki né ágóðarekstr-
arfyrirtæki einstaklinga. Lagalegan rétt sinn til að halda uppi
útvarpsstarfsemi og reka útvarpsstöðvar hefur stofnunin öðl-
ast með sérstökum samningi við aðalpóstmálastjóra brezka
ríkisins. í þessum samningi eru þá einnig viss almenn ákvæði
um hvernig rekstri útvarpsins skuli hagað.
Stjórnendur eða formenn brezka útvarpsins eru sjö að tölu
og eru útnefndir af konungi til ákveðins tíma, sem aldrei