Eimreiðin - 01.04.1943, Side 21
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
101
skipting er orðin úrelt af ýmsum ástæðum. Þannig er Evrópa
og Asía — og jafnvel Afríka einnig landfræðilega séð — eitt
og sama meginlandið. En framfarir í tækni, svo sem f flugi, veld-
or því, að allar fjarlægðir hnattarins eru smám saman að verða
að engu. Hugmyndir manna um rúm og tíma breytast, og um
einangrun þjóða af landfræðilegum ástæðum er ekki lengur
að ræða. Vér ísféndingar höfum um þetta Ijósasta dæmið, þar
sem er vort eigið land. Ríkjasambönd framtíðarinnar mótast
•“neir af andlegum skyldléika þjóða og viðskiptamöguleikum en
fjarlægðum á kortinu. Alrfkisstefnan brezka hefur um langt
skeið mótast með þetta fyrir augum. Þess vegna hefur brezka
alríkið reynst svo traust heild, er á reyndi og nú síðast í yfir-
standandi styrjöld, þó að dreyft sé um allt yfirborð hnattarins.
Slíkt alríki á ekkert skylt við einveldi. Innan þess eru algerlega
óhjáð og sjálfstæð þjóðrfki. Svo er um Ástralíu, Nýja-Sjáland,
Suður-Afríku og Kanada. Þessi ríki hafa t. d. fullan rétt til að
v®ra hlutlaus í styrjöld og til algers skilnaðar við Bretland,
^venær sem þau óska. Ef slík ákvörðun er tekin og samþykkt
af bjóðþingi þessara ríkja, þá héfur brezka ríkið ekkert neit-
onarvald til að koma í veg fyrir það. Annað mál er svo hitt,
bvort þau nokkurn tfma sjá sér hag í hlutieysi í ófriði eða sjá
sér hag f skilnaði, og illa hefði farið fyrir sumum þeirra nú,
svo sem Ástralíu, ef brezki flotinn hefði ekki verið til aðstoðar
að koma í veg fyrir innrás Japana og stöðva framsókn þeirra.
Ekkert hefur farið verr með þau ríki Evrópu, sem nú eru á
valdi Þjóðverja, en þeirra eigin samtakaskortur áður en styrj-
öldin hófst. Einangruð voru þau tekin hvert af öðru, og það
er fyrst og fremst samtakamætti brezka alríkisins að þakka,
sú hertaka hélt ekki áfram, unz ekkert var orðið eftir,
beldur var stöðvuð í miðjum klíðum.
Bandalag eins og það, sem Russell hugsar sér, hefur fjóra
0rnetanlega kosti. Það tryggir hverju ríki innan þess öryggi
Segn árásum utan að. Því ef ráðizt yrði á einn aðila þess, væri
bað sama og að ráðast á bandalagið f heild. Fjárhagslegur
bagnaður væri að því að vera í bandalaginu. Tollar lækkuðu
eða hyrfu úr sögunni í viðskiptum milli ríkja innan bandalags-
'ns. og öll lánsviðskipti yrðu greiðari innan þess en utan. Af
bessu mundi leiða, að allar þjóðir myndu með tímanum leita