Eimreiðin - 01.04.1943, Page 56
136
LÍF Á ÖÐRUM STJÖRNUM
EIMIIEIÐIN
hann fór að hugsa um lífið, sem hlvti að vera til á einhverj-
um þessara stjarna, alveg eins og á jörðunni. Sólirnar gátu
að vísu varla verið byggðar. En umhverfis sumar þessar sólir
hlutu að renna reikistjörnur alveg eins og um vora sól. Og
sumar þessara reikistjarna gátu vel verið byggðar. Bókin um
líf á stjörnunum varð til upp úr þessum hugleiðingum höf-
undarins. Margir hafa svipaða sögu að segja og hann, bæði
hér á landi og um víða veröld.
Hin nýja stjarnfræðilega uppgötvun, sem verða mætti til
þess að gera spurninguna um líf á öðrum hnöttum auðveld-
ari viðureignar en áður, er árangur af athugun vísindamanna
á stjörnuáthuganastöðvum nokkrum víða uin heim, sem
gerðar hafa verið samtímis. Eina leiðin, sem visindamönn-
unum virðist fær til að at'la vitneskju um líf á öðrum hríött-
uin, eina leiðin, sem þeir sjálfir telja örugga, er að leita að
reikistjörnum svipuðum vorri jörð, í öðrum sólkerfum. En
þetta er ákaflega miklum erfiðleikuin bundið vegna þess, að
þó að aðrar sólir en vor sól hefðu slikar reikistjörnur að
fylgihnöttum og veittu þeim v'arma og birtu, sem er mjög
eðlileg ályktun, þá gerði fjarlægð slíkra reikistjarna, nægi-
lega kólnaðra til þess að þar gæti þrifizt líf, það að verk-
um, að mjög erfitt eða jafnvel ógerlegt mundi reynast að
greina þær í stjörnukíki, enda líklegt, að þær væru smáar í
hlutfalli við sólir þær, sem þær snerust um. En það hefur komið
fyrir, að stjörnfræðingar hafa orðið varir við aðdráttarafl
á sýnilega stjörnu, sem truflað hefur göngu hennar, og'
þeir síðan reiknað út, að þetta aðdráttarafl hlyti að stafa
frá dinimri stjörnu eða ósýnilegri. Með þessu vakti t. d. yzta
reikistjarnan í sólkerfi voru eftirtekt á sér, löngu áður en
stjörnufræðingunum tókst að sjá hana. Þeir veittu því eftir-
tekt, að Neptúnus gekk ekki nákvæmlega þá braut, sem hann
átti að ganga samkvæmt hinum stærðfræðilegu Jögmálum og'
reiknuðu lit, að önnur reikistjarna með ákveðna stærð og
stjarnbraut hlyti að valda þessari truflun á göngu Neptúnus-
ar. Allt þetta reiknuðu stjörnufræðingarnir út með vísinda-
legri nákvæmni, enda stóðu útreikningarnir heima, er reiki-
stjarnan Plútó fannst löngu síðar.