Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1944, Page 32

Eimreiðin - 01.04.1944, Page 32
ÍGIMREIÐIN Vornólí. Volduga, víðfaðma þrá, vefðu nú barn'þitt að arm. Svífðu inn á sólroðans lönd, svæfðu öll vonbrigði og harm. Heyri ég hljóma í sál Huldunnar töfrandi söng. Hér get ég kropið á kné, knýtzt þér um vorkvöldin löng. Líttu nú ljóss-sala til, leiftrar þar stjarnanna bál. Heillandi vorblámans vald vaggar þér, friðvana sál. Rökkursins mildi og mýkt met þú hinn dýrasta feng. Láttu við aftansins óð óma þinn klökkvasta streng. Geng ég þér, vornótt, á vald, veittu mér sættir og grið — burtu frá áþján og önn, inn í þinn dreymandi frið. Óskiptur er ég þitt barn, ef ég fæ notið mín sjálfs. Vistráðast vil ég hjá þér, vera þó barn þitt og' frjáls. Vornótt, þú yngir hvern óð, eldi um sái mína i'er. Andvarans viðkvæma vör viknandi hvíslar að mér. Eg kasta ellinnar ham, ungur í dansinn ég geng. Vornótt, þín töfrandi tign titrandi bærir hvern streng. Jens Hermannsson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.