Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1944, Side 64

Eimreiðin - 01.04.1944, Side 64
liiMRlSIÐIN Leikdansinn og sÍYrjöldin. Ballett er sú greia listar, sem vér Islendingar liöfum líklega minnst af að segja allra lista. Að vísu hafa einstaka sinnum sést hér á leiksviði balléttar, en þetta erlenda orð liefur verið þýtt á íslenzku með orðinu leikdansar og er þó livergi nærri fullnægj- andi þýðing. Ballett er sem sé ekki aðeins dans og leikur í senn, heldur sérstæð láthragðslist og tjáning í hreyfingum og hrynj- andi með aðstoð hljómlistar. Orðið mun komið af ítölsku sögn- inni balletto, þ. e. að dansa, og voru ballett-sýningar mjög vin- sæl skemmtun meðal Grikkja og Rómverja hinna fornu, enda stóð listgrein þessi í miklum blóma á Ítalíu strax snemma á mið- öldum. Fræg sýning þessarar tegundar til heiðurs hertoganum af Mílanó og brúði hans fór fram í borginni Tortona á Ítalíu árið 1489. Ekki var venja, að konur tækju þátt í þessum sýningum fyrr en á 17. öld. Amerískur rithöfundur og listdómari, Irvin Deakin að nafni, hefur nýlega ritað grein um viðreisn leikdansins og viðgang i Bandaríkjunum eftir að þessi tegund danslistar hafði beðið marg- víslegan hnekki af völdum styrjaldarinnar. Flest það, sem liér er sagt, er tekið eftir þessari grein. Rekur liann þar, hvernig hallettinn er að ryðja sér til rúms í leikhúsum Bandaríkjanna og hvernig liann er orðinn einhver eftirsóttasta skemmtun allra stétta þjóðfélagsins og þá ekki sízt hermannanna, hvort sem er úr landher, flugher eða flota. Hvergi hefur leikdansinn náð meiri fullkomnun en í Rúss- landi. Bæði fyrir og eftir stjórnarbyltinguna rússnesku liefur liann verið iðkaður á leiksviðum Rússlands og borizt þaðan til annarra þjóða og landa. Margir frægustu ballett-dansarar lieims- ins hafa verið rússneskir, og hin fjarræna fegurð og snilldarlega tækni rússneska hallettsins er hvarvetna talið til fyrirmyndar, þó að list þessi liafi í öðrum löndum öðlazt sín þjóðlegu ser- kenni og fengið á sig sérstakt snið, svo sem í Bandaríkjunum. Irvin Deakin getur þess í grein sinni, að nýlega liafi fram far' ið leikdanssýning í Þjóðleikhúsinu í Washington í viðurvist tigu-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.