Eimreiðin - 01.04.1944, Síða 90
I5TMR13TÐIN
Vopn r/uöanna.
— Nýtt íslenzkt leikrit.
Sjónleikur þessi eftir Davíð skáld
Stefánsson frá Fagraskógi, sem
leikinn var á síðastliðnum vetri
yfir tuttugu sinnum í leikhúsi
Reykjavíkur, er nú kominn út á
forlag Þorsteins M. Jónssonar (Ak-
ureyri MCMXLIV). Drögin að
leiknum sækir höfundurinn í Bar-
laams sögu og Jósaphats, róm-
antiska miðaldasögu úr flokki
svipaðra sagna og Erexsaga,
Bragða-Mágusar saga og aðrar
slikar, sem þóttu góður skemmti-
lestur á vökunni fyrir svo sem
hálfri öld. En annars eru það að-
eins drög og þau mjög fá, sem
höfundur notast við úr sögunni,
því sjónleiknum er ekki ætluð nein
ákveðin stund né staður, heldur
eru atburðirnir allra tíma, við-
fangsefnið ævagamalt og alltaf
nýtt: Baráttan milli ills og góðs,
svo sem maðurinn sáir, svo mun
hann uppskera, hatursins lögmál
gegn góðleikans fagnaðarboðskap
og má að hvers vild heimfærast
upp á hin rammefldu átök samtíð-
arinnar á vorri jörð.
Það liggur í hlutarins eðli, að
sjónleikur með svo víðtækt við-
fangsefni, sem hér er um að ræða,
hafi þá einnig ákveðinn tilgang og
boðun að ákveðnu marki. Svo er
það einnig. Tilgangurinn er að
sýna sigur dyggðarinnar yfir valdi
lastanna, um leið og lejkurinn er
hvöss ádeila á harðstjórn og ein-
ræði. Samhengið i leiknum frá upp-
hafi til enda varðveitist af þessum
tveim sjónarmiðum og helzt nokk-
urnveginn óslitið bak við viðburði
hinna fimm þátta hans. En þar sein
höf. hefur valið sér jafnalgengt
„thema“ og hér er um að ræða,
„thema“, sem óteljandi höfundar
hafa haft til meðferðar á undan
honum, verður vandasamasta verk
hans að nota það þannig, að með-
ferð efnis leiksins verði hvort
tveggja: frumleg og nýstárleg.
Til þess að slíkt megi takast, á
Davíð Stefánsson yfir mikilvægum
kostum að ráða, svo sem drama-
tisku'm krafti og mælsku í stíi og
framsetningu. Snjallar, glitrandi
setningar, oft stuðlaðar, gefa sam-
töluin líf og lit, þar sem annars
myndu ógnir efnis gera áheyrend-
um og lesendum þungt í skapi.
Leikurinn er í eðli sínu „tragedia“
og hin léttari hverfa lifsins lítið
áberandi á leiksviðinu.
Herskár, drottnunargjarn kon-
ungur fylgir stjórnarstefnu harð-
stjórans út í æsar, uppsker laun
hatursins og stendur að leikslok-
urn einmana og útlagi á eigin veldi-
stóli. Einkaráðgjafi hans, lærifaðir