Eimreiðin - 01.10.1946, Blaðsíða 35
eimheiðin
Ævinlýri Páls á
Halldórssiöðum.
i.
Gestir og gangandi, sem á undanförn-
um árum liafa átt viðdvöl nokkra á
Halldórsstöðum í Laxárdal í Suður-
Þingeyjarsýslu, munu hafa veitt eftir-
tekt manni nokkrum aldurhnignum,
fremur lágum vexti, nokkuð ellibeygð-
um. Hann er vel farinn í andliti, skol-
liærður, lætur sér vaxa skegg og klippir
það snyrtilega. Augun eru dökkblá,
snör, vitsmunabjört, og leikur kímni-
glampi í augunum. Hann er hægfara, en
liefur allt til þessa dags haft nokkuð
fyrir stafni og ekki látið sér með öllu
verk úr hendi sleppa, þrátt fyrir níræðisaldur.
Maður þessi er Páll bóndi Þórarinsson á Halldórsstöðum.
Páll er fæddur á Halldórsstöðum 2. febrúar 1857 og fyllir
níræðisaldur 2. febrúar 1947. Hann er sonur Þórarins Magnús-
®onar, er bóndi var á Halldórsstöðum, og konu lians, Guðrúnar
Jónsdóttur, ættaðrar úr Skagafirði. Þeir voru albræður faðir Páls
°g Metúsalem á Arnarvatni. Landskunnur var bróðir Páls, Magnús
Hórarinsson á Halldórsstöðum, hugvitsmaður og þjóðbagasmiður,
sá er fyrstur flutti til Islands kembingarvélar og setti niður á bæ
sínum. Þótti slíkt nýlunda mikil og ærið þrekvirki.
Páll liefur alið aldur sinn allan á Halldórsstöðum, að frá-
tölduni þrentur stuttum dvölurn, er liann á unga aldri átti með
skozkum sauðfjárbændum. Ekki var liann settur til mennla í
sesku, fremur en þá var títt um bændasyni, en mun bafa hlotið
'dlgóða beimafræðslu að hætti sinnar tíðar. Varð það fangaráð
Hingeyinga í þann mund að afla sér sjálfsmenntunar með lestri
góðra bóka, enda reis um þær mundir, er liann verður fulltíða,
Jónas Þorbergsson.