Eimreiðin - 01.10.1946, Blaðsíða 24
248
REGNBOGINN
EIMRHTÐIN
uðu þeir rétt hjá lienni og horfðu á hana. Þeir voru freknóttir
og varaþykkir, og það voru dökkar skorpur á eyrunum á þeiin
eftir sólbruna. Þeir voru líka gildir og hiralegir og höfðu stórar
rauðar hendur. Þeir voru öll sumrin meira og minna að sulla í
ánni, berir upp undir axlir. Það hafði hún lieyrt. Hún hafði líka
heyrt þá kallaða jarðvöðla ... Það var eins og rigndi ofan eftir
bakinu á lienni, þar sem hún stóð hálfvegis í linipri.
En skyndilega var eins og lienni létti. Hún varp öndinni og
brosti. Hvað skyldu þeir svo sem vilja henni, nema þá að segja
eittlivað við liana að gamni sínu? ICannske voru þeir meira að
segja sendir til þess að bjóða henni heim upp á kaffi? Jú, mamnia
þeirra liafði auðvitað séð til þeirra . . . En hún yrði að afsaka sig,
— ja, liún gæti reyndar sagt, að hún skyldi þiggja kaffið, þegar
hún kæmi aftur að framan.
— Komið þið sælir, sagði hún brosandi.
Þeir gutu augunum livor til annars, og svo sagði stærri bróðir-
inn, Þorgils:
— Hvert ert þú að glannast? Hann var flámæltur af gikkslegu
mikillæti.
Hún leit á þá til skiptis. Hún kannaðist ekki við þessa drengi
sem manneskjur. En hún þekkti þá lieldur ekkert. Hún gekk
aldrei til kinda í þessa áttina, og lmn liafði aldrei farið út af bæ
til leikja. Þeir höfðu lieldur ekki talað við neinn nema afa henn-
ar, þessi fáu skipti, sem þeir liöfðu komið að Felli. Þeir höfðu
ekki þegið það boð lians, að koma heim og þiggja eitthvað.
— Eigum við? spurði Þorgils.
— Æ-tli það ekki, svaraði Egill drjúgur, en það var eitthvað
í röddinni, sem gaf grun um, að hann væri ekki eins heilrenndur
svoli og hann vildi vera láta.
Hún starði á þá leiftrandi augum, óráðin frammi fyrir þeirri
gátu, sem þeir vom lienni. Hvað var þetta, sem þeir vildu og
ætluðu? Yar það virkilega eittlivað vont? ... Allt í einu le^
Þorgils til liliðar og tók þar eftir hlassi af lirossataði. Það skímaði
í augum hans, sem höfðu verið dul og óræð. Hann beygði sig
þreif hrossataðsköggul:
— Á ég, ha?
Hún liorfði á liann, engu frekar skelfd og undrandi en áður-