Eimreiðin - 01.07.1951, Page 46
158
SKEMMTIFERÐ FYRIR HÁLFRI ÖLD EIMREIÐlN
þessari á, hvort sem hún væri stór eða smá, því hún lilyti að
renna einliversstaðar til byggða. Léttari í spori en áður og ör-
uggari um að ná til bæja um kvöldið, liéldum við niður gil'
barminn. Höfðum við eigi gengið nema fáar mínútur, þegar við
komum að á, sem rann þvert fyrir okkur og fram af hjalla, er
við vorum nú staddir á. Fórum við yfir ána, er var mjög lítil*
á ís, og stönzuðum skammt handan hennar, þar sem snjónuiO
liafði bosað af melbarði. Þegar við höfðum staðið þarna litía
stund og vorinn rétt að fara af stað, tókum við eftir því báðir
samstundis, að þetta melbarð, sem við stóðum á, var kambur
á upphleyptum vegi og við næstum hrópuðum upp eins og
einum munni: „Við erum á Efri Stöfunum á Fjarðaheiði“, en
þeir eru rétt fyrir botni Seyðisfjarðar, og eigi langt þaðan til
bæja. Þarna liöfðum við komið á ferð okkar til Seyðisfjarðar,
sem fyrr er getið um hér að framan, og þekktum því þennan
stað.
Þótt við værum orðnir nokkuð dasaðii eftir þennan erfiða
dag, gætti þess nú lítið, er við héldum út eftir dalnum, í áttina
þangað, sem við áttum von á viðtökum eins og við væruffl a^
koma heim til okkar.
Það var þungfært niðri á sléttunni, því þar hafði dyngt niður
snjó allan daginn, í næstum logni. Okkur gekk því seint og
komum ekki út að Firði fyrr en klukkan liálf ellefu. Höfðum
þá verið á stöðugri ferð í rúmar 13 klukkustundir.
Við knúðum dyra hjá Guðmundi Pálssyni, sem var hálfbróðir
móður okkar. Kom kona lians, Rebekka, til dyra. Bar hún straX
kennsl á okkur og lieilsaði ástúðlega, en spurði svo eins og dálítið
forviða hvaðan okkur bæri að. Sögðum við henni, að við kænl"
um í dag frá Eskifirði yfir Fjarðarheiði. Varð hún alvég undr-
andi og lofaði guð hástöfum fyrir að hafa leitt okkur þetta.
Sagði hún, að norðanpóstur hefði þennan dag lagt á heiðina og
nokkrir menn í fylgd með Iionum, með marga liesta. Hefðu þeir
snúið aftur, er veðrið skall á, og talið sig liafa komizt að þvl
fullkeyptu að ná til byggða aftur. Frost kvað hún hafa verið
12 stig í byggð þennan dag.
Þarna gistum við í bezta yfirlæti tvo næstu daga og Vorum
liinir bröttustu eftir allt volkið.. En við liöfðum báðir kalið