Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1955, Page 23

Eimreiðin - 01.01.1955, Page 23
EIMREIBIN VIÐ FYRSTU SÝN 11 Inn á torgið skjögraði tuttugu manna langferðabíll, leirugur UPP á hrygg og stynjandi af áreynslu, svo ísland skalf, minnsta kosti sá hluti þess, sem heitir Lækjartorg og Bankastræti. Draumurinn var búinn. Hin stóra stund var upprunnin, og Surnarliði leið inn í hérvistina. Hann sat þar í bil símnn, sem sjá mátti hvern mann um leið hann kom út. Hví ætti hann að vera að standa hér fyrir Hlra augum? Máske er þetta allt annar ferðamannabíll. Máske kemur engin. Allt gat komið fyrir, líka það. Hann er staddur ftiilli vonar og ótta. Hér er engin myrkhærð mey komin. Jú. k'Iáske einhver. En ekki sú, sem hann vænti. Bara hversdags- ^egt kvenfólk í rykugum ferðafötum að bisa við töskur sínar. Já. Nei. Blóð hans tekur kipp eins og árvatn í fossi, sem jakastifla hefur losnað úr. Svo varð það eins og krap í frosti. hað er hin systirín, sem stigið hefur út úr langferðabílnum. Hu þær komnar báðar, máske? Eða —? Nei. Þær eru ekki komnar hér báðar. Eins og eldingu lýstur raunveruleikanmn 111 n í hjarta biðilsins, því menn hugsa aðallega með hjartanu a hinum stærstu stundum. Hann er svo viss um þetta. Hann er svo viss um vangá sína, að hann óskar sér af öllu hjarta keint niður i jörðina. En gatan er augalaus og harðari en allt snnað, sem hart er. Þar niður er engin leið að smjúga undan óilögunum, engin einasta leið. Hér er hann og hér er hún °min, þessi stúlka, sem hann hefur úthellt hjarta sínu fyrir 1 misgrípum. Hvaða leið er héðan af til undankomu? Engin. Héðan af er engin leið fær örmur en að taka því, sem að hönd- um ber, með karlmennsku, máske undanbrögðum, ef þau þá fyrirfinnast nokkurs staðar. ‘ Halló! Þú! Stúlkan hafði þegar komið á hann auga og veifaði. Hurð hans opnaðist, og þau stóðu augliti til auglitis hvort við onnað á þessu einstæða stefnumóti. Hann heilsaði hæversklega og þakkaði fyrir siðast. Hér er U|aður, sem skal sýna það, hugsar hann einhvers staðar lengst 1Uui, að honum skal sízt bregða við voveiflega hluti. ' Hæti ég fengið bíl upp á Hofsvallagötu, mælti stúlkan Preytulega. ■ Sjálfsagt, sagði pilturinn.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.