Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1955, Side 25

Eimreiðin - 01.01.1955, Side 25
EIMREIÐIN VIÐ FYRSTU SÝN 13 Hún sagði þetta þannig, að það var ómögulegt að finna, hvort 1 því átti að felast broddur eða einlægni. Hún leit beint framan í hann, eins og hún ætlaði að lesa þar svarið eins og í bók. — Nei, nei, sagði Sumarliði og var nú farinn að aðgæta um- ferðina á götunni af mikilli gaumgæfni, enda veitti víst ekki af, því þau voru stödd í fjölfarinni götu. — Og svo var Una að opinbera, bætti hún við með nýrri rödd. Þetta var eins og högg. Það suðaði fyrir eyrum hans, og hjartað færðist til upp og niður. Einhver vitur maður hefur sagt, að af öllu dularfullu, væri konan þó dularfyllst. Af hverju er Anna hingað komin og lætur heyrast í rödd sinni bæði sárindi og storkun, þegar hún minnist otilkvödd á opinberun systur sinnar? Þögn. '— Það er Hofsvallagata, segir hún svo eftir stundarkorn. Og hún nefnir númerið aftur. Ó! hvað ég get annars verið upp- gofin! andvarpaði hún svo og sökkti sér enn dýpra ofan í sætið, eins og í leit að kodda að hvílast á. — Allt í lagi, anzaði pilturinn og hafði nú náð miklu valdi yfir sjálfum sér af nærveru við hið óskiljanlega í fari þessarar stúlku. Máske er ekkert eins læknandi ástarraunir eins og ridd- aramennskan, nema ef vera skyldu nýir vinningar í riki Venus- ar- Og þegar sólin er setzt, taka líka stjörnurnar að skína, vana- lega. — Eigum við ekki að koma við heima hjá mér, áður en við förum til frænku þinnar? spurði pilturinn hlýlega. Hún leit á hann, en sagði ekki orð. Mikið voru þau ólík, augun. Hér er ró og friður, máske dá- fítill dapurleiki, sem gott væri að geta þurrkað út. Hin brunnu og brenndu og settu allt úr jafnvægi. Og þó, var ekki eitthvað 1 þeim alveg eins, eitthvað lengst, lengst inni? Eitthvað, sem rotaði við, eitthvað dularfullt eins og myrkrið, sem var ósýni- fegt í sumar eða vor? En kannske er það bara það, að stjörnurnar fari ekki að skína fyrr en sólin er setzt.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.