Eimreiðin - 01.01.1955, Síða 34
22
SKÁLDIÐ FRÁ FAGRASKÖGI
EIMREIÐIN
í þvi formi kvæði eins og Týndur og tröllmn gefinn, Abba-
labba-lá, Til Logalanda, Sigling og Margt er þeim að meini —,
sem komu í Svörtum fjöðrum. Fólkið kannaðist við þennan
þuluklið og þessa hrynjandi úr hálfgleymdmn söngvum bernsku-
áranna. Stefjakliður Svartra fjaðra náði þegar í stað eyrmn
allrar þjóðarinnar, og hún tók honum með fögnuði eins og lang-
þráðum vini.
Næsta ljóðabók Davíðs, Kvæði, kom út árið 1922. 1 henni
birtust fyrst smn þau ljóð, er síðar hafa orðið meðal vinsælustu
bragsmiða hans, svo sem Sigling inn Eyjafjörð, Dalakofinn,
Hamraborgin, Með lestinni, Konan með sjalið, Hirðinginn o. fl.
í þriðju ljóðabókinni, Kveðjum (1924), birtust meðal annarra
ljóða kvæðin Ég sigli í haust, Messalina og Eyðimörk, en þau
tvö siðastnefndu kvæði höfðu áður birzt hér í ritinu (Eimr. 4.—5.
h. 1924, bls. 216—221), ennfremur hinn undurfagri óður Á
föstudaginn langa, og ýms ferðakvæða skáldsins frá Italíu, svo
sem Feneyjar, Lapí og Neapel.
Nú verðm- mn skeið hlé á útkomu ljóðabóka eða um fimm
ár, en þó er fjarri því, að skáldið leggi árar í bát þetta tímabil.
Hann ræðst nú í að birta sitt fyrsta leikrit. Munkarnir á Möðru-
völlum koma út árið 1926, en með þvi hefst annar meginþátt-
urinn í rithöfundarstarfi hans: leikritagerðin. Leikurinn fjallar
mn ástir, en er um leið ádeila á hræsni og yfirdrepsskap klaust-
mslifsins.
Árið 1929 koma út Ný kvæði. Með þeirri bók öðlast Davíð
Stefánsson, svo ekki er lengur um deilt, heiðurssess með fremstu
ljóðskáldum Islendinga. Hátíðarljóð hans árið eftir staðfestu til
fullnustu þá skáldfrægð, sem hann öðlast á árunum 1918 til
1929. Llann er nú ekki aðeins eitt af fleirum fremstu ljóðskáld-
um þjóðarinnar, heldm er hann nú orðinn fremstur þeirra, að
dómi drjúgs hluta landsmanna.
I Nýjum kvæðum eru meðal annarra snjallra ljóða sögulegu
kvæðin rnn Hallfreð vandræðaskáld, Hrærek konung í Kálf-
skinni og Lofkvæði Lamentíusar biskups til abbadisarinnar á
Stað. Þar eru ómþýð náttúruljóð, eins og kvæðin Nú sefm jörðin
sumargræn, Vorljóð, Nú er fagmt upp til fjalla, Haust og Nætur-
ljóð. Þar eru hvatninga- og ádeilukvæði eins og Á vegamótum,
Andvarp, Söngm galeiðuþræla og Rottm. Þarna eru tilbeiðslu-