Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1955, Page 40

Eimreiðin - 01.01.1955, Page 40
LlFSINS VlN IV Ef gleðifuglinn fælist heimsins gný og flýgur burt og hverfur bak við ský, af þessu víni teyg þú taka skalt, það töfrar hamingjunnar Ijóma á allt. Ei framar Helju syndargjaldið gelzt, við grafarmunna vonarengill dvelst, og bikar þann hann ber í hendi sér, sem barmafylltur víni lífsins er. En falli dropi á hönd, sem bikar bar hinn barmafulla, skal hann standa þar sem roðasteinn í stjörnudjásni rúms, er stráir geislum auðnir næturhúms. V Hinn forni garður, þar sem þokkinn býr og þreyttum svalar jafnan drykkur skír, er alls staðar, og enginn bannar þér þar inn að ganga og hvílast nær sem er. Ef bitur kennd hið innra angrar mann og einangrun og fæð er kring um hann, einn drykkur honum færir frelsi og yl, hann finnur þá, að vinir eru til. Ef skynsemin er leiðarljósið ein, á lífsins braut mun verða förin sein. En öruggur með guði gengur sá, er gætir þess, sem raddir hjartans tjá. VI Menn skilja ei orð mín, brosa stundum blítt, en benda á, að þau sannleik hermi lítt, í öllum heimi ekkert sé það vín, sem augun geri skyggn á slíka sýn. Þeir þekkja drúfusafann, segja því: Þú svallari, sem drekkur æ á ný,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.