Eimreiðin - 01.01.1955, Page 52
40
GULLGERÐARLIST HIN NtJA
EIMREIÐIN
sem menn búast nú til að nota í staðinn fyrir kol, vatnsafl, gas
og aðrar þekktar orkulindir.
Atómsérfræðingar vinna nú að því að rannsaka frumeinda-
kjarna hinna ýmsu frumefna, þann furðulega heim efnis og orku,
sem þar er að finna. En til þessara rannsókna þarf margbrotin
og dýr tæki og vandaðan útbúnað starfsmanna, til þess að koma
í veg fyrir hætturnar frá hinum geislavirku efnum. Vél sú hin
Hringvaki (cyclotron).
mikla, sem notuð er til að kljúfa frumeindakjarna, kostar til
dæmis tugi milljóna króna. Heiti hennar er cyclotron, sem hefur
verið þýtt á íslenzku með orðinu hringvaki. Rekstur slíkrar vélar
kostar tugþúsundir króna á dag, enda þurfa að vinna við hana
stór hópur eðlisfræðinga, efnafræðinga, stærðfræðinga, vélfræð-
inga og rafmagnsfræðinga, svo og líffræðinga og lækna. Kostn-
aðurinn við þessar rannsóknir er svo mikill, að fæstar ríkis-
stjórnir, hvað þá sérstofnanir einstaklinga, eru svo efnum búnar,
að þær ráði við rekstur kjarnarannsóknastöðva. Þess vegna hefur
verið komið á alþjóðasamvinnu um þessi mál.
Fyrstu alþjóðastofnunina til þessara rannsókna er nú verið að
reisa í Genf á Svisslandi. Alþjóðasamtök þau, sem að því verki
standa, eru til orðin að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna og nefnast
Cern, sem er skammstöfun á hinu franska heiti: Conseil Européen