Eimreiðin - 01.01.1955, Side 72
60
SAMBAND VIÐ ÓSÝNILEGA HEIMA
eimreiðiN
Sannlega segjum vér yður, að margir þeirra spádóma, sem
sagt er frá í Opinberunarbókinni, eru nú að rætast. Þér hafið
nýlifað af tortímandi heimsstyrjöld, þar sem þér urðuð sjónar-
vottar að því, hvernig ágirnd og græðgi varð orsök þess, að
heilar þjóðir bárust á banaspjót til þess að tortíma hver annarri
í þágu veraldlegra yfirráða. En þetta var aðeins forspil að enn
geigvænlegri þrengingum, sem nú eru í vændum.
En látum skeika að sköpuðu í þvi efni. Vér erum ekki hér
til að skjóta yður skelk í bringu, heldur til þess að vara yður
af fyllstu alvöru við því, sem koma skal og kenna yður, hvernig
þér eigið að snúast við erfiðleikunum, en úr þeim munu allir
þeir bjargast, sem hafa sigurmerkin skráð á enmnn sér.
Þau geysimiklu reikistjarnaáhrif, sem eru að færast yfir,
munu auka mátt þeirra sálna, sem þroskazt hafa í vítisáttina,
svo sem vér liöfum lýst, en þær eru nú fleiri holdgaðar hér á
jörðu yðar en dæmi eru til áður i sögu seinni alda. Þær eru
reiðubúnar til að leggja sig fram um að sigrast á völdum ljóss-
ins og þeim, sem þau hylla, til þess með því að sanna, að þeirra
máttarvöld séu fær um að gera þær að drottnurum þessarar
jarðar. Þær hyggjast um leið sýna, að kenningar kristindómsins
geri menn dáðlausa og makráða, og verði fylgjendur hans því
óumflýjanlega undir i átökunum milli myrkurs og ljóss.
Þessar tvær voldugu fylkingar munu takast á af alefli með
þeirri kynslóð, sem nú lifir á jörðunni. Þúsundir yðar hafa
skipað sér í fylkingu með réttlætinu, gerzt fræðarar og flytj-
endur orðs Jesú Krists á þessum þrengingatímum. En þeir
tímar eru nú að hefjast. Brátt mun harðna á bárunni og bar-
áttan magnast, unz hún nær hámarki. Þá munu sumir mæla
svo: Jörðin er Satans, látum hann hremma hana. En Kristur
mun segja: Jörðin er mín, og það, sem mitt er, mun ég varð-
veita.
Svo er það einnig, kœru bræSur, að þessi endurkoma hans
er í nánd. Hinir ófræddu tálma réttri túlkmi þessara tíma ljóss
og myrkurs, hins hreina og óhreina. Þeir skynja ekki hinar
dýpri orsakir atburðanna, telja þá afleiðingar athafna stjórn-
málamannanna, sem koma og hverfa af sjónarsviðinu, nú eins
og ævinlega. Þeir vita ekki um hin miklu átök, sem gerast á
öðrum sviðum tilverunnar mn þeirra eigin jörð. Þeir vita ekki