Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1955, Page 90

Eimreiðin - 01.01.1955, Page 90
78 RITSJÁ EIMREIÐIN breiddu stöku eina liað hann sjálf- ur, og sýndi þar nieð, að ekki var honum sama um minningu sina. Hjálmar gerði í þe.isu efni betur en beðið var, og margan visnasveiginn er siðan búið að leggja á leiði snill- ingsins; vart hafa aðrir gert það af meiri innileik en Steingrimur, blið- skáldið. Þetta mætti minna okkur á, að fara hlýjum höndum um verkin hans, minna okkur á, að þar stöndum við andspænis einum af ljúflingum guðanna. Hann var það ekki miður fyrir þá sök, að hlutur hans í jarð- rikisdýrðinni varð smár. Sá hlutur varð eins og Schiller gerir ráð fyrir honum i hinu fagra kvæði sinu, Teil- ung der Erde, sem þeir þýddu báðir, Sigurður Breiðfjörð og varnarmaður hans, Sveinbjörn Egilsson. En hlutur hans í dýrðarheimi andans varð ósmár og mun lengi endast landinu, sem hann kvað um af svo djúpri og viðkvæmri ást. Enda þótt þessi útgáfa af ritum skáldsins liafi ekki liafizt með þeim ágætum, sem hæft hefðu minningu hans, má hún enn verða harla merki- leg, og að réttu lagi i hún að verða dýrasti sveigurinn. Svo á að halda henni fram og við huna að ljúka, að hún geti að lokum stuðið við hliðina á útgáfu Finns Sigmundssonar af Hjálmari. Ekkert af því, sem hér hefur verið átalið, er með þeim hætti, að ekki megi enn að fullu bæta úr þvi, og ef einhverjum finnst það vera margt, þá hugleiði sá hinn sami, að hér hefur verið fjalluð um 500 blað- siður. Enginn má gera sig svo óvitr- an, að hann láti þessar misfellur aftra sér frá lestri bókanna, eða frá þvi, að styrkja útgáfuna með þvi að kaupa hana. Það skal vera niðurlag þessa greinarkorns, að hvetja sem flesta til að gera svo — sjálfra sin vegna og þjóðarinnar. Sn. J. SONATE VED HAVET af Gunn- ar Gunnarsson. Köbenhavn 1955 (Gyldendal). Brimhenda er heiti sögu þessarar í islenzku útgáfunni, sem birtist á síðastliðnu hausti. Nú liefur hið gamla forlag Gyldandal, sem gefið hefur út eldri sögur Gunnars Gunn- arssonar á dönsku, emnig birt þessa. Það munu áhöld um á hvoru málinu sagan sé betur rituð. En vald höf- undarins á danskri tungu er meira en nokkurs annars núlifandi Islend- ings. Það er fyrir lcngu ljóst orðið og dylst ekki i þessari bók. „Sonate ved havet“ er í ýmsu svip- aðrar ættar og sagan Aðventa, sem þýdd hefur verið á mörg tungumál og vakið mikla rthygli bókmennta- fræðinga, þótt stutt sé. Meðal ótal erlendra lofsamlegra ummæla um þá bók eru ein þau yngstu, sem ég hef rekizt á, grein um 50 beztu skáld- sögur siðustu hálfrar aldar, eftir rit- höfundinn John T. Erederick, sem út kom nú í febrúar þ. a. Þar segir svo: „Ein sú ánægjulegasta saga, sem ég minnist að hafa lesið á liðnu tímabili. er Aðventa eftir hinn ágæta íslenzka rithöfund Gunnar Gunnarsson." Benedikt, góði hirðirinn í Aðventu, og Sesar í Brimhendu eru andlega skyld náttúrubörn. Sonate ved havet er í sannleika hvort tveggja i senn: Snjöll túlkun hins dynmikla tónaóðs brimsins við íslenzka strönd fyrir opnu hafi, — manni kemur undir eins Eyrarbakki í liug sem sögusvið, — og jafnhliða þeirn túlkun er sag- an hetjuljóð í óbundnu máli um lifs- baráttu fátæks fiskimanns, frá vöggu

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.