Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Qupperneq 32

Eimreiðin - 01.07.1956, Qupperneq 32
184 EIMREIÐIN Maðurinn kastaði frá sér verkfærinu, kom hlaupandi til mín út að girðingunni og brosti vingjarnlega. „Já, það ert þú, Davíð,“ sagði hann og rétti mér hlýja, góða höndina. „Komdu blessaður og gerðu svo vel að líta inn. En hvað þú varst vænn að muna eftir mér.“ „Það er bezt að segja sannleikann," sagði ég, „ég var alls ekki að heimsækja þig, góði kunningi! Þetta var hreinasta tilviljun. Ég er að leita að manni, sem mér er sagt að búi hér nálægt, og svo sá ég þig, án þess að þekkja á þér bakið, og ætlaði að spyrja til vegar." „Nei við höfum sjálfsagt ekki oft hugsað hvor til annars öll þessi ár, síðan þú hvarfst héðan,“ sagði Sverrir. „En fyrst forlögin ráku okkur loksins sarnan, þá komdu inn snöggvast eða lengi, eftir því sem það nú vill verða. Ég er einn heima í dag, konan fór með báða krakkana upp í sumarbústað til vinkonu sinnar. Ég gef þér kaffi eða mjólk eða þá ekkert, ef þú vilt ekkert." Hann hló við, — ekki eins og hann hafði gert síðustu tvö til þrjú árin, áður en hann hvarf mér, heldur eins og í gamla daga, þegar við vorum saman í skóla. Það var mjög gleðilegt að heyra það. Við gengum inn, og ég leit á íbúðina, snotra og þó íburð- arlitla. Hann átti hana, og ég fann, að hann var ánægður — og að honum leið vel. Þar sem ég vildi engar góðgerðir x mat eða drykk, gengum við aftur út í garðinn og fengum okkur þar sæti. Mig langaði til að tala við hann og vita um hagi hans, fá að vita, hvemig hamingja lífsins hafði snúizt að honum á ný. „Þegar við skildum síðast,“ sagði ég formálalaust, „var margt, sem að þér amaði. Konan þín, það er þó, vænti ég ekki“ — — „Nei, nei,“ greip hann fram í fyrir mér. „Konan mín heit- ir María Jónsdóttir og er frá Akureyri.“ „Það liggur við, að mér þyki vænt um það,“ sagði ég, „því að ég held, að h i 11 hefði aldrei gengið svona vel.“ Ég hló við. Hann leit á mig, og mér sýndist eins og dimma yfir and- liti hans. En áður en ég gat afsakað mig, brosti hann. „Ég ætla að segja þér stutta, einkennilega sögu,“ sagði hann. „Ég hef engum sagt hana áður, en nú finnst mér ég
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.