Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 56
208
EIMREIÐIN
herfilegustu mynd. Ekki er heldur hægt að líta svo á, að
þetta sé aðeins stundarfyrirbrigði, því að enda þótt nú sé
byggt í úthverfum borgarinnar af ótrúlegum hraða og dugn-
aði, getur fjöldi hinna nýju og snotru íbúða, sem virðast
búnar öllum nýtízku þægindum, engan veginn fullnægt hinni
gífurlegu eftirspurn. Það virðist því ekkert vafamál, að her-
skálarnir verði notaðir til íbúðar, unz þeir falla í rúst. Á hinn
bóginn megum við ekki líta á notkun herskálanna til íbúðar
sem dæmi um örbirgð og fátækt, því að það böl er óþekkt
á íslandi, að minnsta kosti í þeirri mynd, sem við þekkjum
það, og enda þótt þessi þjóð ynni aldrei neitt annað sér til
ágætis, mun hin raunverulega útrýming fátæktar á íslandi
ævinlega verða öðrum þjóðum heims gott fordæmi. Herskál-
inn er því ekki merki fátækrahverfis, heldur örþrifaráð til
þess að bæta nokkuð úr hinum mikla húsnæðisskorti.
Þetta hlýtur að teljast hörmuleg þróun, því að Reykjavík
virðist sannarlega hafa fengið svo ríkulegan skerf af slæmu
og handahófslegu skipulagi fyrri ára, að sízt sé þar heilh
herskálaborg á bætandi. Með fram ströndinni norðaustur af
aðalhöfninni virðast húsin hafa sprottið upp á mjög óreglu-
legan og lítt skipulegan hátt, og Reykjavík í heild kemur
hinum enska ferðamanni ósjálfrátt til þess að hugsa af auk-
inni vinsemd og þakklátssemi til þeirrar stjórnardeildar, sem
á Englandi hefur með höndum skipulagningu bæja og kaup-
túna. Það væri jafnóvingjarnlegt og það er óréttlátt að bera
Reykjavík saman við bæi, sem risið hafa upp í skyndi, eins
og gullnámabæina heimskunnu, því að margir borgarhlutar
eru mjög þokkalegir og skipulegir. f útjöðrum borgarinnar
er samt allt of mikið af smákofum og hreysum, sem líta ut
eins og þeim hefði verið dritað niður með fram vegunum-
Auk þess mætir ennþá augum manna allt of mikið af um-
merkjum styrjaldarinnar, öðrum en herskálunum, og í þessu
landi, þar sem limgerði vaxa ekki, hefur ryðgaður gaddavir
og girðingarnet verið allt of mikið notað í þeim friðsamleg3
tilgangi að koma í veg fyrir óþarft ónæði og átroðning. Til
eru borgarhlutar, einkum í námunda við flugvöllinn, sem
virðast augljóslega bera það með sér, að þar hafi búið her-