Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Side 34

Eimreiðin - 01.07.1956, Side 34
186 EIMREIÐIN Þannig leið meira en ár — hálft annað ár — og ekkert eða lítið lagaðist þetta hörmulega og hlægilega ástand mitt. Þú fórst úr bænum, ég frétti það — eða þú sagðir mér það, ég man það ekki, og þar með var ég algerlega einn. — Ég hef gleymt flestu, sem gerðist þau árin. Einhver dularfullur andi hafði gagntekið mig. Ég var stöðugt í sömu hringiðunni, máttlaus hraktist ég hring eftir hring, ásamt öðru rekaldi, sem ég fann til frekar en sá. Ég hafði enga samúð með því fólki, engan áhuga, — ég var á mínu hringsóli, sem hlaut, að því er mér fannst, að enda á Kleppi eða í dauðanum.“ Hann þagnaði um stund og horfði út í bláinn. „Ég veit ekki, af hverju ég er að segja þér þetta,“ sagði liann svo. Ég svaraði engu. „Nú líklega af því,“ hélt hann áfram, „að þú varst eini maðurinn, sem ég fann að skildi mig að einhverju leyti. Svo var það einn laugardag síðla sumars. Ég kom frá mat, — var alltaf í fæði á sama stað. Laugardagar og sunnudagar voru mínir verstu dagar. Þá var ekkert að gera, hið eina, sem hélt lífinu — eða öllu heldur vitinu — í mér, var vinnan. Þá vann ég í skrifstofu íþróttasambandsins, en ekki nema mjög lítið við íþróttakennslu. Ég hafði blátt áfram lagt sjálfar íþróttirnar og leikfimina á hilluna. Hafði ekkert þrek til þess að fást við slíkt, sem auðvitað hefði verið mér hollast. Nei, það var eins og annað. Ég gekk fram hjá Austurvelli og sá þá, að þar stóð stór vagn og hópur af fólki kringum hann. Fólkið hafði með sér svefnpoka, bakpoka og ferðatöskur, ætlaði sýnilega að fara í útilegu yfir helgina. Ég vék mér að manni, sem virtist vera fararstjóri, og spurði hann, hvert förinni væri heitið. Hann sagði mér það. Ætlunin var að aka upp í fjöll, alllangt frá bænum, og gista þar í sæluhúsi og tjöldum. Ég spurði hann, hvort fullskipað væri í vagninn, og kvað hann það ekki vera; gætu tveir eða þrír í viðbót fengið far. Vagninn færi eftir hálfan tíma, klukkan tvö. Ég tók mér far, sjálfum mér til mikillar undrunar og skundaði heim til þess að ná í svefn- pokann minn. Á leiðinni keypti ég mér smurt brauð í nestið og nokkrar flöskur af maltöli. Ég gekk að þessu eins og í

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.