Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 58
210
KIMREIÐIN
una, sem rís frá hinum ótalmörgu heitu laugum og hverutn
landsins. Þessa náttúruauðlind hafa íslendingar tekið í sína
þjónustu, og mikill hluti höfuðborgarinnar er nú hitaður upp
með heitu vatni, sem kemur upp úr djúpum borholum að
Reykjunt, um það bil tíu mílur vegar frá borginni. Þaðan
er vatnið leitt í víðum leiðslum, sem liggja í steinsteyptum
stokk. Það er út af fyrir sig merkilegt, að vikur hefur reynzt
bezta efnið til þess að einangra þessa heitavatnsleiðslu. Síðan
er hitinn seldur eftir mæli, þegar til borgarinnar kemur. Við
hinar heitu uppsprettur hefur sprottið upp mikill fjöldi gróð-
urhúsa, og þaðan koma suðræn blóm og grænmeti til höfuð-
staðarins í bílhlössum á degi hverjum. Ef íslendinga skortir
nokkurn skapaðan hlut, þá er það ekki grænkál og tómatar.
Hjarta og lífæð Reykjavíkur er höfnin og bryggjurnar. Hér
kemur jafnan saman heilmikill floti togara og vélbáta, sem
safna hinni ríkulegu uppskeru hafsins, sem umlykur landið.
Fiskveiðar og útflutningur fiskafurða eru hyrningarsteinn
íslenzks efnahagslífs, og því er höfnin og hafnarmannvirkin
hin mikilvægustu. Hér er ýmislegt á rúi og stúi, og annar-
legur þefur og heldur ógeðfelldur virðist jafnan liggja hér
í lofti. Ef ferðamaðurinn þarf af einhverjum ástæðum að
doka við í Reykjavík, þarf honum ekki að leiðast, því að
ekki getur hjá því farið, að hann geti skemmt sér við að
skoða sig um í höfninni og umhverfi hennar. Á einum stað
er verið að skipa fiskfarmi á land, á öðrum liggur eitt af
skipum Eimskipafélagsins og verið er að afferma það suð-
rænum vörum. Hér liggur brezkur tundurduflaveiðari við
hliðina á norsku flutningaskipi og hefur tekið sér hvíld yf11
helgina frá hinum leiðigjarna starfa að hreinsa botn Hval-
fjarðar af ýmislegu rusli og hindrunum, sem þar voru skildai
eftir á stríðsárunum. Nú kemur freigáta úr hinum konung-
lega brezka flota upp að. Hún er hér komin í kurteisis-
heimsókn til þess að heiðra fámenna björgunarsvéit á Vest-
fjörðum, sem unnið hefur hið frækilegasta afrek við björgtm
áhafnar af togara frá Fleetwood, sem strandaði við Vestfirði
um hávetur. Sumir vélbátarnir líta út eins og í þeim sé búið
allt árið. Þar harigir þvottur á snúru og skreið til þerris-