Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 57
SVIPMYNDIR FRÁ ÍSLANDI
209
sveitir og þær hafi verið lieldur kærulausar um að hreinsa
til, áður en þær héldu á brott.
Ekki má þó leyfa þessum agnúum og augljósu göllum á
skipulagi og hirðingu borgarinnar að draga athyglina frá
hinum mörgu ágætu og snotru byggingum, sem finna má víðs
Yegar um Reykjavík, svo sem háskólabyggingunni og hinum
^nörgu skólum, sjúkrahúsum, hinni eftirtektarverðu kirkju
kaþólskra, sem stendur á mjög fögrum stað, nýtízku leikhúsi
°g safnhúsi og mörgum íbúðarhúsum í einkaeign, sem virðast
bæði vel gerð og nægilega nýtízkuleg í sniði til þess að full-
1,ægja kröfum þeirra húsameistara, sem fylgja nýjustu stefn-
um í húsagerðarlist. Hin miklu sambýlishús, sem nú virðast
mjög stór liður í íslenzkri byggingarstarfsemi, að minnsta
kosti í Reykjavík, þjást af tilbreytingarleysingu í útliti, en
þó virðast línur margra þeirra vera frekar aðlaðandi fyrir
augað. I sterku hliðarljósi mynda þessi hús oft og einatt
Yiðfelldna fleti ljóss og skugga.
I stuttu máli sagt, þá virðist andstæðurnar, sem eru svo
ríkur þáttur í útliti landsins, ekki heldur vanta í Reykjavík.
^fér fannst ég skynja þetta einna bezt, þegar ég sá vel klædda
°g fríða, ljóshærða stúlku koma út úr einum herskálanum,
beYgja sig undir þvottinn, sem hékk úti á snúrum, og hverfa
UPP í skærlitan og vel hirtan Pontiac eða Buick af nýjustu
gerð auðvitað. Nýjasta tízka í klæðaburði og varalit er heldur
ekkert óþekkt fyrirbrigði í Reykjavík, og sama máli gegnir
Ulu hina fyrirferðarmiklu amerísku lúxusbíla, sem koma
Englendingum, sem búið hafa við langvarandi bifreiðaskort,
^ þess að góna eins og naut á nývirki. Það er ekki ósjaldan,
sem ég hefði gjarnan viljað hafa leigubílinn, sem ég ók í,
heim með mér. Eitt var það, sem vakti hjá mér jafn mikla
undrun sem ánægju: blómaverzlanirnar voru einn hafsjór af
nnum fegurstu gladíólum og rósum. Sá leyndardómur ligg-
í því, hve íslendingar hafa sýnt mikinn dugnað við að
u}'ta á hinn hagkvæmasta hátt hið heita vatn, sem sýður og
uUar rétt undir jarðskorpunni.
Nafnið Reykir virðist mjög algengt staðarnafn á íslandi,
^ði eitt sér og í ýmsum samtengingum. Ekki gefur það til
'ynna reyk og sót úr reykháfum verksmiðjanna, heldur guf-