Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 40
Svarta re^lan
eftir
Guðmund Gíslason Hagalín.
I.
Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, sagði í ræðu, sem
hann flutti hinn 1. ágúst s. 1., þegar hann var öðru sinni sett-
ur inn í hið virðulega embætti:
„Hér stendur lýðræði og þingræði föstum fótum. Norrænu
eðli og stjómarfari verður ekki kippt upp með rótum á svip-
stundu. Frá upphafi hafa íslendingar borið saman ráð sín.
Og enn byggjum vér á því, að frjálsar umræður séu örugg'
asta eða eina leiðin til að nálgast svo sannleik og réttlæti, sem
enn er framast áskapað að geta náð. Ólíkar stefnur eru jafn-
an uppi. „En það er enginn skaði,“ segir Jón Sigurðsson, „þ^
meiningamunur sé, heldur getur orðið skaði að, hvernig
meiningunum er fylgt.“ Það er einmitt það, sem gerir mun-
inn, einnig með lýðræðisþjóðum, hvernig meiningunni er
fylgt fram. Það er hvort tveggja til, að flytja svo mál sitt, að
mest sé byggt á fáfræði og ofstæki áheyrenda, eða á hinn veg'
inn að tala til heilbrigðrar skynsemi og þjóðhollustu. En
um ofbeldi til að koma fram máli sínu þarf ekki að ræða
hér á landi.“
í vor fylgdist ég sem óvirkur áheyrandi og áhorfandi með
hinni hörðu baráttu flokkanna í alþingiskosningunum, faS
stefnuyfirlýsingar og greinar í blöðum, hlustaði á málflutn-
ing frambjóðenda á fundum og í útvarpi og bar saman frá-
sagnir blaðanna um frammistöðu hinna ýmsu aðila í mála-
sennum. Forseti íslands áréttar þannig orð hins mikla fe>r'
ingja íslendinga, Jóns Sigurðssonar: „Það er einmitt það>
sem gerir muninn, hvernig meiningunni er fylgt fram-
Hann bendir á hinar tvær gjörólíku leiðir til málflutnings,
og minnir síðan með þessum orðum á hengiflugið. „Um of'