Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 81

Eimreiðin - 01.07.1956, Blaðsíða 81
ERLENDAR BÓKAFREGNIR 233 Síðasta bók hennar, sem nefnist Sjö dagar og sjö nætur (Syv dager °g netter), virðist gædd hinni sömu skáldlegu innsýn og hnitmiðun. k iðfangsefni sögunnar er að vísu ekki nýtt. Eveline, sem er mjög ''analeg lnismóðir, flýr frá manni S|num, sem henni finnst vera bæði daufur og leiðinlegur, og börnum sínum — til þess að geta búið í etna viku með lækni nokkrum, sem hefur mikið orð á sér sem kvenna- ntaður og flagari. En Solveigu ^hristov tekst að gæða frásögnina einstöku fjöri og orku. í þessu rCvintýri sínu upplifir Eveline al- sælu ungrar, ástfanginnar stúlku, hita kynferðishvatanna og loks heiskju vonbrigðanna. Hún hlýtur snúa aftur til hins daufa og hversdagslega eiginmanns síns. hlskhugi hennar, Alex, kemst þá a® raun um, að þetta hefur ekki verið honum neitt venjulegt ævin- lyri — og án árangurs reynir hann a!') telja Eveline á að koma aftur hl sín. Alex finnur nú raunveru- eSa sjálfan sig. „Þú hefur notað hina dánu stúlku, sem þú hélzt a® þú hefðir elskað forðum," segir einn af vinum hans við hann, „sem afsökun fyrir hóglífi þínu og svalli " °S sem átyllu fyrir að neita að takast á herðar ábyrgð lífsins." Sjö dagar og sjö nætur er lítil en vel sögð saga, sem er þrungin sannfærandi magni. Virðast norsk- Sagnrýnendur sammála um, að Pessi bók lofi mjög góðu um rit- öfundarferil Solveigar Christovs. england. í Lundúnum kom fyrir skömmu siðan út fyrsta bók ungs rithöf- J^dar, að nafni Colin Wilson. ann er sonur verkamanns í skó- verksmiðju og að mestu leyti sjálf- menntaður. Bók þessi nefnist á frummálinu The Outsider (Sá, sem er utangátta), og sjaldan eða aldrei hefur fyrstu bók ungs rithöfundar verið tekið af slíkum fögnuði og ákefð af hinum frekar hörðu gagn- rýnendum og bókmenntaspeking um Lundúna. Cyril Connolly, einn af kunnustu gagnrýnendum Breta. segir meðal annars í Sunday Times: „Sem fyrsta bók höfundar er þetta ein af þeim merkilegustu, sem ég hef lesið.“ Philip Toynbee, sem einnig nýtur mikils álits og starfar sem bókmenntagagnrýnandi hjá vikublaðinu Observer, sagði um bók þessa: „Bók Wilsons er tæm- andi, bráðsnjöll og gáfuleg athug- un á táknrænu vandamáli þeirra tíma, sem við lifum á. .. . Verk þetta má heita furðulegt afrek." Ein meginástæðan fyrir því, að enskir bókmenntagagnrýnendur, sem við fyrstu bók eru venjulega heldur sparir á hrósyrði sín um höfunda, tóku þessari bók svo óvenjuvel, var hin furðulega þekk- ing, sem Wilson virðist hafa á verkum slíkra manna sem Bern- ards Shaw, Nietzches, Tolstoys, Dostoevskijs William Blake, Ge- orges Fox, H. G. Wells, Henris Barbusse, Hermanns Hesse, T. S. Eliots, T. E. Hulmes, Kierkegaards, Kafkas, Gurdjieffs og Ramakrishna, svo að ekki séu fleiri taldir. Það, sem einkum gefur bókinni gildi, er þó miklu fremur hitt, að Wilson virðist nota þekkingu sína á ævi og verkum þessara manna sem lita- spjald til þess að draga upp mál- verk af eins konar ósýnilegum manni, sem hefur skapað og á eftir að endurskapa þá liugmynd, sem maður 20. aldarinnar hefur um
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.