Eimreiðin - 01.07.1956, Page 82
234
EIMREIÐIN
sjálfan sig og hin brennandi vanda-
mál sín og síns tíma.
Hinum ósýnilega manni Wilsons
mætti lýsa sent samblandi af exist-
entialistískri hetju, sönnum trú-
manni, sem ekki hefur fundið guð,
og spámanni, sem enn leitar að
sannleikanum. Vandamál hans
liggur ef til vill fyrst og fremst í
því, að liann er. sannfærður um
synd sína, en fær sig samt ekki til
þess að samþykkja liinar hefð-
bundnu kenningar kristindómsins.
Wilson er eindregið þeirrar skoð-
unar, að maðurinn þarfnist „nýrr-
ar trúar“. Og ef þessi mjög svo um-
deilanlega forsenda er tekin góð
og gild, þá má mcð sanni segja, að
útskýring höfundarins á eðli hins
ósýnilega manns, sem stendur utan-
gátta, vandamálum hans og innri
baráttu, er sannarfega hrífandi.
Colin Wilson er nú tæplega 25
ára að aldri, fór úr menntaskóla
16 ára gamall og hefur síðan gert
Britisli Museum að skóla sínum,
en þar hefur hann setið nær öllum
stundum undanfarin ár, líkt eins
og Bernard Shaw og Karl Marx hér
áður á árum, við lestur og skriftir.
Hann vinnur nú að skáldsögu um
Jack the Ripper, sem er einhver
sérstæðasta persónan í brezkri
glæpasögu („svipar í raun réttri
mjög til Nijinskys", segir Wilson),
auk þess sem hanti hefur þegar
gert frumdrögin að þriðju bókinni,
sem er eins konar framhald af
hinni fyrstu, þar sem liann hyggst
gera frekari grein fyrir hugmynd-
um sínum um ný trúnrbrftgð.
ÍRLAND:
Liam O’Flaherty er einn af
kunnustu rithöfundum írlands —
og sem smásagnahöfundi hefur
lionum verið skipað á bekk með
snjöllustu löndum sínutn — þetm
Frank O’Connor, Sean O’Faolain
og Joyce.
Síðast liðið vor kom út safn af
smásögum eftir O’Flaherty, og
þykja sögur þessar allar góðar og
sumar hreinustu perlur. í bókinm
eru alls 42 sögur; gerast þær nær
allar rneðal íbúa eyjarinnar Aran,
sem búa við jafnfrumstæð skil-
yrði og erfið lífskjör og forfeður
þeirra fyrir meir en þúsund árutn.
Mór og skán er eldsneyti þeirra,
þangið eini áburðurinn, kartöflur
og fiskur aðalfæðan. Síða af reyktu
svínsfleski er mikil og sjaldgæf
auðæfi. Ef kýrin geldist seint að
haustinu eða á miðjum vetri, stofn-
ar hún lífi f jölskyldunnar í voða.
O’Flaherty ritar af mikilli þekk-
ingu og skilningi um hina bla-
snauðu bændur og fiskimenn, svo
að lesandinn hlýtur að hrærast af
tilfinningum þeirra og finna til
djúprar samúðar með þeim vegna
kjara þeirra og lífsbaráttu. Svo
virðist sem O’Flaherty vilji segja,
að lífið sé aðeins hægt að skilja
með því að líta það í ljósi dauð-
ans. „Ég óska þér hamingjusamrar
æviloka," hrópar ein af söguhetj-
um hans á eftir kunningja sínum.
eins og þetta sé það eftirsóknar-
verðasta, sem lífið geti veitt.
í einni sögu sinni, sem heitu
Brottförin, segir O’Flaherty
Michael Joyce, er hann yfirgefur
litla fiskiþorpið á Araney. Hann er
aðeins 13 ára gamall og á að fara
með bátnum til meginlandsins,
ganga þar í klausturskóla og verða
sfðan prestur. Með sama bátnuffl
sendir faðir lians vetrung, sern
hann hefur selt til eyjarinnar Gal-
way. Það gengur í mestu handa-