Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1963, Síða 42

Eimreiðin - 01.01.1963, Síða 42
30 EIMREIÐIN víta, hvað þetta voðalega fólk gat tekið fyrir. Kerlingin var eitthvað að tala um endurgjald og réttlæti. Hvers var að hefna? Ekki hafði hann clrepið Rósu. Og hvernig gat hún líka talað við hann, ef hún var dauð? Hann greip dótið sitt og hentist út úr stofunni. Það var dimmt í göngunum. Einhvers staðar heyrð- ist marra í hurð og þunglamalegt fótatak færðist nær. Hjörtur fálm- aði eftir útidyrahurðinni í dauðans ofboði, og honum tókst að opna. Til allrar hamingju kom hann auga á hnakkinn sinn og beizlið úti fyrir dyrunum, og hann þreif það með sér og hljóp niður trað- irnar. Hestarnir hans voru á beit við túnfótinn, svo að það tók hann ekki langan tíma að komast á bak. Hann þeysti svo af stað og hugsaði um það eitt að losna sem fyrst undan þessari skelfilegu martröð. Allt í einu heyrði hann hófadyn að baki sér. Skyldi honum vera veitt eftirför? Hann neyddi sig til þess að líta um öxl, en sá þá ekki annað en húsin í Bakkakoti, sem risu ógnþrungin í auðnarlegu um- hverfinu. ☆ ★ ☆ Urval úr ritgerðum Laxness á dönsku Meðal 107 bóka á útgáfulista Gyldendals í Kaupmannahöfn á fyrri hluta þessa árs, er ritgerðasafn eftir Halldór Kiljan Laxness. Þetta er úrval úr ritgerðum Laxness, bæði úr bókum, blöðum og tímaritum, og hefur Erik Sönderholm, fyrrverandi lektor við háskólann hér, gert þýðinguna og valið ritgerðirnar. Bókin á að koma út í aprílmánuði og verður um 100 blaðsíður að stærð. Hún heitir á dönsku: De is- landske Sagaer og andre Essays. Af öðrum bókum, sem koma út hjá Gyldendal um þessar mundir má nefna Teatrets Kunst, endurminningar Poul Reumerts, sem gefin er út í tilefni af áttræðisafmæli Reumerts, 26. marz. Bókin er 136 lesmálssíður, auk 32 myndasíðna. Þá koma út hjá Gyldendal á fyrri hluta ársins nokknr frumsamin verk ungra, danskra höfunda, þar á meðal tvær nýjar skáldsögur. Önn- ur heitir Besöget, eftir 23 ára Árósarbúa, Áge Madsen, en hin er eftir Heinrich Rasmussen og heitir Den korte Frist, og er hans fyrsta skáld- saga. Ennfremur eru á útgáfulistanum mörg þýdd skáldverk, þar á meðal ný bók eftir nóbelsverðlaunahöfundinn John Steinbeck, Pa Rejse med Charley.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.