Eimreiðin - 01.01.1965, Síða 56
Presturinn Mikli í musterinu
í Shiga var búinn hinum ágæt-
ustu mannkostum. Augnabrún-
ir hans voru hvítar iyrir hærum,
og hann virtist ekki fær urn
meira erfiði en rétt að hreyfa
skinhorað líkamshreysið, þegar
hann hökti um musterið stucjdur
við prikið sitt.
í augurn þessa lærða meinlæta-
manns var veröldin ekki annað
en ruslahaugur. Hann var búinn
að lila utanveltu við heiminn í
mörg og löng ár, og litla furu-
plantan, sem hann hafði gróður-
sett með eigin höndum, þegar
hann flutti inn í klefann sinn,
var orðin að stóru tré, sem sveil l-
aði greinum sínum í vindinum.
Munkur, sem hafði tekizt að af-
neita veröfd yl irborðsins svona
lengi, lilaut að vera öruggur uni
lífið el'tir þetta.
Þegar Mikli Presturinn sá ríku
mennina og aðalinn, brosti hann
aí meðaumkun og undraðist, að
þetta fólk skyldi ekki gera sér
ljóst, að skemmtanir þess voru
innantómir draumar. Þegar
hann sá fagrar konur, kenndi
hann ekki annarra tilfinninga en
aumkunar með þeim mönnum,
sem lifðu ennþá í veröld blekk-
ingarinnar og létu reka á bylgj-
um líkamlegra nautna.
Frá því augnabliki, þegar þau
öfl og ástríður, sem ráða og ríkja
í veröld efnisins, hafa tapaðvaldi
sínu yfir huganum, er heimur-
r---------------------
Presturinn
og ástin hans
v.____________________
inn kominn í fullkomna ró. í
augum Mikla Prestsins sýndi ver-
öldin aðeins hvíld. Hún var
einna líkust mynd, sem teiknuð
hafði verið á pappírsnriða, eða
þá landabréf af fjarlægri álfu. Sá
maður, sem náð lrefir því sálar-
ástandi, þar sem freistingar
heimsins eru svo gjörsámlega
yfirunnar, hefur einnig gleymt
óttanum. Vegna þessa gat prest-
urinn ekki lengur skilið, hvers-
vegna helvíti skyldi vera til.
Hann vissi að hin skynjanlega
veröld hafði ekki lengur neitt
vald yfir honum, en vegna þess,
að hann var algjörlega laus við
hroka, datt honum ekki í hu<>,
að jietta viðhrof væri árangurinn
af hans eigin dyggðum.
Hvaðlíkama prestsins áhrærði,
þá mátti segja, að hans eigið hold
hefði yfirgefið hann. Við þau
tækifæri, þegar hann veitti lík-
anta sínum athygli, - til dæm-