Eimreiðin - 01.04.1973, Qupperneq 6
EIMREIÐIN
Er hinn
þögli meirihluti á Islandi
mesta
byltingaraflið?
VIÐTAL VIÐ SIGURÐ LlNDAL, PRÖFESSOR
Spyrjendur af liálfu Eimreiðarinnar: Björn Bjarnason, Gunn-
laugur Claessen, Jón Óttar Ragnarsson og Hannes Gissurarson.
Viðtalið færði í letur: Hannes Gissurarson.
94
ÍSLENZK ÞJÓÐERNISVITUND
— Er þjóðernisvitund Islendinga sterk?
S. L.: Ef borið er saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, má
ef til vill segja, að svo sé. Samt sem áður er ég hræddur um, að
þjóðernishyggja þeirra sé býsna mikið á yfirborðinu: Meiri
í orði en á borði. Ef opinberlega er fylgt hreintungustefnu, ef
konur bera þjóðbúning — að ekki sé talað um, að karlmenn
smeygi sér í fornmannabúning — ef menn liáma í sig íslenzkan
mat — helzt úr trogum —- og ef menn kunna einhver kynstur
af þeim gömlu kjaftasögum, sem gengur undir nafninu þjóð-
legur fróðleikur, er það talið bera vitni um trausta þjóðmenn-
ingu. Mér virðist ávallt að átt sé við einhver slík ytri einkenni,
þegar rætt er um að varðveita þjóðerni eða þjóðlega menn-
ingu. Hún virðist vera eins konar safngripur, sem geyma á til
skemmtunar eða afþreyingar — eða af einhvers konar gagns-
lausri ræktarsemi, — að öðru leyti virðist hún ekki skipta
máli. I daglegri önn verði þjóðin að tileinka sér að öllu leyti
erlenda menningu. — Og þá getur jafnvel skinið í gegn, að
íslenzk menning sé heldur til trafala, t. d. íslenzk tunga í
samskiptum við umheiminn o. s. frv. Af þessu leiðir, að um-
»