Eimreiðin - 01.04.1973, Síða 11
EIMREIÐIN
Ísraelsríkis. Annars ætti varla að þurfa að útlista þetta fyrir
Islendingum. Saga þjóðarinnar síðustu liálfa aðra öld sannar
þessi áhrif þjóðernisstefnunnar, svo að ekki verður um villzt.
— Nú er þjóðernisstefna óneitanlega tvíeggjuð, og hún hef-
ur á stundum leitt til ófarnaðar. Viltu gera einhvern greinar-
mun á ólikum tegundum þjóðernisstefnu, t. d. þjóðernisstefnu
stórvelda og smáþjóða?
S. L.: Vandalaust er að henda á ýmislegt neikvætt við þjóð-
ernisstefnu, og hún getur gengið út í öfgar eins og flest annað.
Yrði allt of langt mál að ræða það liér. En rétt er það, að
reginmunur er á þjóðernisstefnu smáþjóða og stórvelda. Menn-
ing smáþjóða getur aldrei orðið jafnfjölþætt og menning
stórþjóða. Almennt stendur hún því ekki jafntraustum fótum.
Má hér sem dæmi nefna þjóðtunguna og þá menningu, sem
við hana er bundin. Það, sem til er ritað á máli smáþjóðar, er
allajafna miklu minna og einhæfara en það, sem til er á máli
stórþjóðar. Þess vegna verða smáþjóðir að fylgja markvísari
þjóðernisstefnu en stórveldin og vera betur á verði. Menning
smáþjóðar þarf ])ó engan veginn að vera minna virði. Með
smáþjóðum eru unnin afrek á sviði menningar, t. d. í fræðum,
99