Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1973, Side 15

Eimreiðin - 01.04.1973, Side 15
ÉIMREIÐIN einhver goðgá, þótt hermennirnir kynntust um leið einhverju af íslandi eða islenzkri menningu í stað þess að loka sig inni í eigin menningu og í reynd þröngva lienni inn í íslenzkt þjóð- félag? -— Annars sýnir saga sjónvarpsmálsins ótrúlega linkind fyrirsvarsmanna Islendinga — hvernig Bandaríkjamönnum hef- ur tekizt að vefja þeim um fingur sér. Þetta segi ég af því að ég vil ekki trúa, að þeir hafi sýnt þá óhollustu að hleypa Banda- ríkjamönnum vísvitandi með sjónvarp sitt inn í íslenzkt þjóð- félag. En sendingar þess hófust einmitt um þær mundir, sem framkvæma átti þá yfirlýstu stefnu Islendinga að takmarka sem mest áhrif af dvöl varnarliðsins á íslandi. Reyndin varð sú, að Alþingi var blekkt, rangar skýrslur voru gefnar og horf- ið frá öllum yfirlýsingum og loforðum jafnskjótt og þau voru gefin. Fulltrúum Bandaríkjahers tókst að snúa taflinu svo ger- samlega, að áhrif hersins hafa jafnt og þétt aukizt, þannig að þau hafa aldrei verið meiri en nú, einmitt þegar herstöðva- andstæðingarnir sjálfir fara með völd í landinu. Ofan á þetta hætist svo, að sjónvarpsstöðin er algerlega ólögleg að íslenzk- um lögum og sennilega einnig bandarískum. En Bandaríkja- menn telja sér livað eftir annað fært að storka vinstri stjórn- 103

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.