Eimreiðin - 01.04.1973, Page 15
ÉIMREIÐIN
einhver goðgá, þótt hermennirnir kynntust um leið einhverju
af íslandi eða islenzkri menningu í stað þess að loka sig inni í
eigin menningu og í reynd þröngva lienni inn í íslenzkt þjóð-
félag? -— Annars sýnir saga sjónvarpsmálsins ótrúlega linkind
fyrirsvarsmanna Islendinga — hvernig Bandaríkjamönnum hef-
ur tekizt að vefja þeim um fingur sér. Þetta segi ég af því að
ég vil ekki trúa, að þeir hafi sýnt þá óhollustu að hleypa Banda-
ríkjamönnum vísvitandi með sjónvarp sitt inn í íslenzkt þjóð-
félag. En sendingar þess hófust einmitt um þær mundir, sem
framkvæma átti þá yfirlýstu stefnu Islendinga að takmarka
sem mest áhrif af dvöl varnarliðsins á íslandi. Reyndin varð
sú, að Alþingi var blekkt, rangar skýrslur voru gefnar og horf-
ið frá öllum yfirlýsingum og loforðum jafnskjótt og þau voru
gefin. Fulltrúum Bandaríkjahers tókst að snúa taflinu svo ger-
samlega, að áhrif hersins hafa jafnt og þétt aukizt, þannig að
þau hafa aldrei verið meiri en nú, einmitt þegar herstöðva-
andstæðingarnir sjálfir fara með völd í landinu. Ofan á þetta
hætist svo, að sjónvarpsstöðin er algerlega ólögleg að íslenzk-
um lögum og sennilega einnig bandarískum. En Bandaríkja-
menn telja sér livað eftir annað fært að storka vinstri stjórn-
103