Eimreiðin - 01.04.1973, Qupperneq 17
ÉIMREIÐIN
allra þjóða í hættu, sem hér eru ekki tök á að ræða nánar. Hér
á landi veldur það sérstökum vanda, að múgmenningin er af
erlendum toga spunnin. Eitt merkilegasta sérkenni íslenzkrar
menningar er, að hún er ein. Hér iiafa ekki verið nein skörp
skil á milli leikra og lærðra, eða a. m. k. miklu minni en við-
ast annars staðar. Alþýða manna hér á landi virðist ávallt liafa
átt nokkra hlutdeild í hámenningu þjóðarinnar og lærðir menn
í alþýðumenningunni. f>etta liefur haft geysimikil áhrif á ís-
lenzkt samfélag. Það hefur dregið úr stéttaskiptingu og verið
undirstaða jafnaðar í þjóðfélaginu. Ég er viss um, að pólitísk
gerð íslenzks þjóðfélags væri allt önnur, ef þetta menningar-
samfélag hefði ekki verið til. Enginn vafi er á því, að hér gæt-
ir áhrifa fornbókmenntanna: íslendingar Iiafa allir, lærðir sem
ólærðir, átt íslendingasögurnar og aðrar fornbókmenntir að
sameiginlegum menningararfi. Þetta einkenni íslenzkrar menn-
ingar tel ég ómetanlegt. Mesta hættan, sem stafar af múg-
menningu nútímans er einmitt sú að ýta undir eins konar
menningar-stéttaskiptingu í þjóðfélaginu, sem reyndar þegar
gætir allverulega, og sundra þvi, en það gæti haft víðtækar
breytingar í stjórnmálum. Hermannasjónvarpið er þar mjög
mikill áhrifavaldur — er það vafalaust sá mesti, þótt það sé
ekki sá eini.
— Er stigsmunur eða eðlismunur á herstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli og herstöðvum Rússa austantjalds?
S. L.: Munurinn er mjög mikill, en sumt er þó svipað. Til-
gangur stórveldanna er í háðum tilvikum að treysta sig í sessi,
halda áhrifum og auka þau. Til þess nota þau mjög ólíkar að-
ferðir: Rússar þvinga rússneskri menningu upp á Eystrasalts-
þjóðirnar og nola m. a. til þess sjónvarp. Bandarikjamenn leit-
ast við að auka vinsældir sinar meðal ákveðins hluta þjóðar-
innar og áhrif hér með herstöðvarsjónvarpinu. Þeir beita for-
tölum og í mesta lagi óbeinum þvingunum og íslendingar geta
haft mikil áhrif á gang mála þótt þeir geti ekki ráðið úrslitum
eins og fyrr sagði. Ráðstjórnarríkin heita hins vegar heinum
þvingunum og ofbeldi, og þurfa elcki að gefa mikinn gaum að
óskum nágrannaþjóðanna.
ÍSLAND í ALÞJÓÐASAMSTARFI
— Ef leiðir skildust með Bandarikjunum og Vestur-Evrópu,
hvorum væri þá eðlilegra, að Island fylgdi?
S. L.: Island er Evrópuríki, og íslenzk menning er runnin af
evrópskum stofni, þannig að við eigum að öllu jöfnu mesta
samleið með Vestur-Evrópu.
105