Eimreiðin - 01.04.1973, Page 21
EIMREIÐIN
vel líka innrás Bandaríkjasjónvarps í íslenzkt þjóöfélag, — já,
fagnar henni. Með því stuðlar liann að því, að vegið sé að
grundvelli islenzks þjóðernis og menningar. En um leið gerir
hann meira: Ýtir óbeint undir þann klofning og upplausn í
þjóðfélaginu, sem ég vék að áðan og raskar um leið undir-
stöðu þess. Verður hér fyrir undarleg þversögn: Óeirðalið göt-
unnar er i reynd að berjast fyrir að varðveita þjóðernislegan
grundvöll þjóðfélagsins, hann er varðveizluhneigður og íhalds-
samur, en hinn slétti og felldi þjóðfélagshorgari er með and-
varaleysi sínu í reynd að umturna þjóðfélaginu. Sá ráðsetti
þjóðfélagsþegn, sem liggur frammi fyrir hermannasjónvarp-
inu og lætur ekki mikið á sér kræla hversdagslega, er að gera
byltingu, — þá mestu í allri Islandssögunni. Á íslandi eru
mestu byltingamennirnir ráðsettir borgarar úr hópi hins þögla
meirihluta. Og þeir munu svo sannarlega súpa seyðið af and-
varaleysi sinu þótt síðar verði.
— Hver er orsök áhugaleysis Sjálfstæðisflokksins á umræð-
um um þjóðernismál?
S. L.: í upphafi var Sjálfstæðisflokkurinn þjóðernissinnaðm’.
En nú er þjóðernishyggja hans yfirborðsleg og stöðnuð. Þjóð-
ernismál eru ekki skoðuð í ljósi nútímaviðhorfa, heldur í róm-
antiskri birtu fortíðar líkt og ég lýsti áðan. Ég held, að áhuga-
leysi margra sjálfstæðismanna á þjóðernismálum stafi ein-
mitt af þessum úreltu og stöðnuðu hugmyndum þeirra sjálfra.
Þeir leggja þjóðernisstefnu að jöfnu við eitthvað gamalt, dautt
og fúlt, sem standi framförum nútímans fyrir þrifum. Ein-
hvers konar alþjóðahyggja sem stórveldin hafa búið til sjálf-
um sér til framdráttar sé hins vegar tengd lífi og framförum.
Allt er þetta þó grundvallarmisskilningur, eins og ég vona, að
þegar sé nægilega rökstutt. Einnig má ætla, að eindreginn
stuðningur Sjálfstæðisflokksins við dvöl varnarliðsins og sam-
starf vestrænna þjóða valdi hér einhverju, svo og alþjóðlegir
viðskiptahagsmunir. Annars er Sjálfstæðisflokkurinn í undar-
legri aðstöðu. Hann hefur lalið meðal æðstu markmiða sinna
að vinna gegn hvers konar hyltingar- og upplausnaröflum í
þjóðfélaginu og ekki hefur verið lögð minni áherzla á efna-
legar framfarir. Það væri í fullu samræmi við þessa stefnu,
að flokkurinn væri þjóðernissinnaður, sem merkti um leið, að
hann væri varðveizluhneigður. Þjóðernisstefna tryggir hvort-
*veSgja: festu og framfarir. En hvað gerist? Sjálfstæðisflokk-
Urinn er vissulega andvígur ýmsum þjóðfélagsbreytingum, svo
sem þjóðnýtingu fyrirtækja, annars konar ríkisafskiptum og
samþjöppun valds. Hins vegar virðist þessi andstaða öll bund-