Eimreiðin - 01.04.1973, Blaðsíða 22
EIMREIÐIN
110
in við yfirborðið, við þjóðfélagsbreytingar, sem flokka má
undir dægurmál. Hann ráfar á eftir hinum skammsýna og and-
varalausa borgara og lætur það afskiptalaust, þótt vegið sé að
undirstöðum islenzks þjóðfélags, eins og gert er með hermanna-
sjónvarpinu, og virðist ekki fá skilið, að það geti leitt til af-
drifaríks klofnings og upplausnar í íslenzku þjóðfélagi. „Rót-
tækni“ Alþýðubandalagsins virðist hins vegar beinast að dæg-
urmálefnum, að breytingum á ýmsu ytra skipulagi þjóðfélags-
ins, t. a. m. þjóðnýtingu einstaki-a fyrirtækja, sem er þó engan
veginn fylgt fast eftir, eða hlutleysi í utanríkismálum o. fl.
Þegar hins vegar kemur að meginundirstöðu, elcki sizt menn-
ingarlegum grundvelli þjóðfélagsins, þá er flokkurinn eins og
fyrr sagði afar íhaldssamur. Mér finnst ég heyra liálfgert tóma-
hljóð, þegar sjálfstæðismenn eru að vara við upplausnaröfl-
um í þjóðfélaginu. Því miður befur áróður Kalda stríðsins gert
margan sjálfstæðismanninn liálfruglaðan. Ef minnzt er á þjóð-
ernismál, ef bvatt er til einhverrar lágmarksaðgæzlu i þeim
efnum, eru óðara rekin upp hróp um kommúnisma, laumu-
kommúnisma og nytsamlegt sakleysi. Má mikið vera, ef þessi
orð eiga ekki eftir að heyrast, þegar þetla hefti Eimreiðarinnar
kemur út. Málgagn þessa hálftryllta liðs virðist vera Velvak-
andi Morgunblaðsins. Sem betur fer held ég, að fullyrða megi,
að þessi hópur sé í minnihluta innan Sjálfstæðisflokksins, en
hann er óneitanlega hávaðasamur. Hann er eins konar and-
Iiverfa við götulið vinstrimanna. Það get ég fullyrt, að margir
sjálfstæðismenn hafa sörnu skoðun og ég á þjóðernismálum,
en þeir bafa ekki hafl áhrif á forystu flokksins. Hún tvistígur
í einhvers konar skoðanaleysi í þessum málum.
— Nú telja ýmsir, að mikill meirililuti almennings styðji
útsendingar Keflavikursjónvarpsins. Hvað hefur þú um það
að segja?
S. L.: Það er rétt, að sextán þúsund voru sögð hafa skrifað
undir mótmæli við lokun Keflavíkursjónvarpsins. Reyndar
kom i ljós, að þessi undirskriftalisti var að töluverðu lejdi falsað-
ur, nöfn ýmissa fundust ekki á þjóðskrá eða um börn var að
ræða o. s. frv. En hvað sem því líður má varpa fram þeirri
spurningu, hversu langt stjórnmálamenn eig'a að g'anga í því
að hlaupa eftir almenningsáliti, sem e. t. v. er einmitt mót-
a'ð af þessari sjónvarpsstöð. Ég álit hlutverk stjórnmálafor-
ingja að veila forystu, en ekki elta duttlunga. Eða á hermála-
ráðuneyti Bandaríkjanna og sálfræðingar þess að móta al-
menningsálit á íslandi og forvstumenn okkar síðan að hlaupa
eftir því?
j