Eimreiðin - 01.04.1973, Page 23
— Álítur þú íslenzka stjórnmálaflokka liafa vanrækt þetta
Iilutvei'k sitt?
S. L.: Já, starfsemi íslenzkra stjórnmálaflokka liefur um of
beinzt að því að lej7sa vandamál liðandi stundar. Mér finnst
scm islenzkir stjórnmálamenn geti ekki hugsað lengra en í
kjörlímabilum, og liafi það eitt að markmiði að fljóta ofan á.
Auðvitað verður það alltaf meginhlutverk stjói’nmálaforingja
að greiða úr þeim málurn, sem kalla að. En þeir rnega þó elcki
missa sjónar á vissum grundvallarhugsjónum.
— Að livaða lejdi geta íslenzkir skólar stuðlað að aukinni
þjóðernisliyggju á meðal íslendinga?
S. L.: I skólum er læplega x-ækt önnur en hin yfirborðslega
þjóðernisstefna, sem ég hef áður rætt um. Þetta er annars
spurning um það, hvers islenzkir skólar séu yfirleitt megn-
ugir: Ég get ekki svarað því öðruvísi en svo, að ég hef almennt
enga séi-staka trú á skólum, eins og þeir nú eru.
°Það, sem hér birtist, er einungis útdráttur þess, sem fór milli mín og
viðmælenda minna. M. a. var þeirri athugasemd hreyft að flytja her-
stöðina á annan stað á íslandi án þess að nokkur staður væri nefndur.
Eg taldi öll tormerki á þeirri lausn, þótt í sjálfu sér væri hún æskileg.
Þetta varð þó til þess, að ég fór að hugleiða slíka breytingu á skipan
mála meira en áður og komst loks að þeirri niðurstöðu, að líklega yrði
þetta bezta lausnin. Kom þá einnig í ljós, að Valdimar Kristinsson var
sama sinnis og hafði þar öllu fastmótaðri hugmyndir en ég. Reyndust
skoðanir okkar mjög falla saman og varð úr, að við rituðum grein í
Morgunblaðið, er birtist 16. janúar sl. þar sem við leggjum til að stöðin
verði flutt norður á Melrakkasléttu. — Sigurður Líndal.