Eimreiðin - 01.04.1973, Page 39
EIMREIÐIN
flóknari vélbúnað og hlutfallslega fleiri tæknimenntaða menn
í starfsliðið. Með öðrum orðum: áætluð meðalframleiðni á
starfsmann ákveður tæknina, er nota verður, og starfsgreina-
skipting vinnuaflsins ákvarðast af tækninni. Síðari forsendan
er sú, að það liggi nokkuð ljóst fyrir, hvaða menntun þurfi til
að gegna ákveðnu starfi. Þessar forsendur eru mjög umdeildar,
enda hafa gagnrýnendur haldið því fram, að meiri sveigjan-
leiki eða staðkvæmd sé í framleiðslukerfinu en þeir áætlana-
smiðir vilji vera lála. Áætlanir um þjóðarframleiðslu 10 til 15
ár fram í tímann standast yfirleitt aldrei, svo að í rauninni
hefur tíminn, hvorki sannað né afsannað mannaflaáætlanir.
Flestir eru því þó sammála að gefa verði væntanlegri eða áætl-
aðri þróun efnahagsmála glöggan gaum, er skólamál eru skipu-
lögð, en þau verður að skipuleggja allmörg ár fram í tímann.