Eimreiðin - 01.04.1973, Qupperneq 66
EIMREIÐIN
HERBERT REED:
Heimspeki
stjórnleysis
FYRRI HLUTI
Sú stjórnmálaafstaða, seni setur svip sinn á nútímann ein-
kennist ekki af trúfestu, lieldur örvilnun.
Enginn trúir lengur í einlægni á þau félagslegu heimspeki-
lcerfi, sem hæst hefur borið að undanförnu. Sumir, þótt þeim
fari fækkandi, trúa því enn, að Marxismi sem hagkerfi geti
leyst kapítalismann af hólmi. Og sósíalismi hefur reyndar sigr-
að í einu landi.* En hann hefur engu breytt um þjónkun og
fjötra mannsins. Hvert sem litið er, sést, að líf mannsins er
drepið í dróma. Leiðarljós gerða hans er hagræns eðlis og
hlýtur að auka það félagslega misrétti, sem hann hugðist forð-
ast. I örvæntingu sinni frammi fyrir ósigri kapítalismans og
sósíalismans hefur fjöldinn lent í klóm fasisina — byltingar-
hreyfingar, sem stefnir að því að koma á fót kreddubundnu
valdkerfi mitt í allri ringulreiðinni. I þessu pólitíska svart-
nætti lapar þorrinn áttum. Þeir, sem ekki fyllast vonleysi, leila
einir síns liðs á vit bænarinnar. En aðrir trúa því stöðugt, að
unnt sé að byggja nýjan lieim, ef við aðeins köstum fyrir borð
þeim hagrænu hugmyndum, sem sósíalismi og kapítalismi
grundvallast á. Nýr heimur getur ekki orðið til, fyrr en við
setjum frelsi og jafnrétti ofar öllum öðrum markmiðum —
ofar eigin hagnaði, tæknilegu valdi og þjóðernishyggju. Þetta
'Þrjátíu og þrjú ár eru liðin, síðan þessi grein var rituð. Nú eru þessi
ríki mörg. En flest eiga þau brautryðjandann, Sovétríkin, að fyrirmynd
eða eru leppríki þeirra. — Þýð.