Eimreiðin - 01.04.1973, Qupperneq 74
EIMREIÐIN
Höfundatal
Siffuróur Líndal prófessor fæddist í Reykjavík 2. júlí 1931. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1951, lauk B.A prófi í latínu
og sagnfræði 1957 og lagaprófi 1959 frá Háskóla íslands. Sigurður stund-
aði framhaldsnám í réttarsögu í Kaupmannahöfn og Bonn 1960—1962.
Síðan hefur hann verið fulltrúi hjá Borgardómara, ritari Hæstaréttar og
er nú prófessor í lögum við Háskóla íslands. Siguður hefur ritað fjölda
greina í blöð og tímarit, einkum um menningarmál og sagnfræði.
Matthías Johannessen ritstjóri fæddist í Reykjavík 3. janúar 1930. Hann
varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1950 og lauk cand. mag.
prófi í íslenzkum fræðum með bókmenntir sem aðalgrein 1955 við Há-
skóla íslands. Hann hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins frá 1959. Matthías
hefur m. a. gefið út nokkrar ljóðabækur.
Þráinn Eggertsson hagfræðingur fæddist 23. apríl 1941. Hann varð
stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1961, lauk B.A. prófi í hagfræði
frá háskólanum í Manchester á Englandi 1964 og doktorsprófi í hagfræði
frá Ohio State University í Bandaríkjunum 1972. Þráinn var starfsmaður
O.E.C.D. 1964—1965, en er nú lektor í viðskiptafræðideild Háskóla íslands.
Hjörleifur Sigurðsson listmálari fæddist í Reykjavík 26. október 1925.
Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1945 og stundaði
síðan myndlistarnám í Svíþjóð, Frakklandi og Noregi 1946—1952. Hann
hefur m. a. kennt við Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Alexander Solsjenitsyn fæddist 11. desember 1918. Hann hlaut menntun
sína við háskólana í Rostov og Moskvu, tók þátt í heimsstyrjöldinni síðari
og hiaut þar tvö heiðursmerki fyrir hugrekki. Hann sat í fangabúðum
kommúnista 1945—1953 og var í útlegð í Síberíu 1953—1957. Hann hefur
á undanförnum árum verið einn helzti gagnrýnandi kúgunar þeirrar og
harðstjórnar, sem er í Ráðstjórnarríkjunum. Fyrir það var hann rekinn
úr rithöfundasamtökum Ráðstjórnarríkjanna árið 1969. Alexander Sol-
sjenitsyn hlaut Nóbelsverðlaun í bókmenntum 1970. Hann er talinn meðal
helztu rithöfunda þessarar aldar.
Árdís Þórðardóttir viðskiptafræðinemi fæddist 7. marz 1948. Hún lauk
íþróttakennaraprófi 1968 frá íþróttakennaraskóla íslands. Að loknum
kennslustörfum í eitt ár hóf hún nám við Kennaraskólann og lauk þaðan
kennaraprófi og stúdentsprófi 1971. Hún stundar nú nám í viðskipta-
fræði við Háskóla íslands.
Herbert Reed ljóðskáld og listfræðingur fæddist 1893 í Yorkshire á
Stóra-Bretlandi. Hann hlaut menntun sína við háskólann í Leeds og
gerðist síðar safnvörður og háskólakennari. Hann hefur gegnt prófessors-
stöðu við háskólana í Edinborg, Cambridge, Liverpool og Harvard. Her-
bert Reed hefur ritað fjölda bóka um listir og fagurfræði auk ljóðabóka.
Hann lézt árið 1972.
162