Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Side 33

Eimreiðin - 01.04.1974, Side 33
EIMREIÐIN mun óábyrgum stjórnvöldum veitast unnt að framfylgja ströng- um verðlagsákvæðum í stað raunhæfra, en e.t.v. óvinsælla, að- gerða gegn verðbólgu, þar til almennur skilningur er fenginn á fánýti verðlagsákvæða. Leggja ber því niður öll verðlagsákvæði. I byrjun myndi afleiðing þessa verða nokkur verðlagshækkun, á meðan tekjuskipting kemst í jafnvægi það, sem áður var varnað með óraunhæfum verðlagsákvæðum. Ef ekki er um annan umlals- verðan verðbólguþrýsting í hagkerfinu að ræða, þá mun smám saman draga úr verðhækkunum, unz stöðugu verðlagi er náð. Hitt er einnig nauðsynlegt, til að tryggja frjálsa verðmyndun, að banna með lögum ýmsa verzlunarhætti, sem stríða þar á móti. Samkeppni innflutnings er áhrifamesta leiðin, til að varna einokunarverðmyndun innlendra framleiðenda annarra en þeirra, sem starfa í þjónustugreinum eins og heildsölu og smá- sölu, þar sem ekki er um að ræða erlenda samkeppni. Því bæri að banna söluaðilum og samtökum þeirra að krefjast þess, að ákveðið lágmarksverð sé á vöru þeirra í heildsölu og smásölu, eða að gætl sé ákveðinnar lágmarkshlutfallstölu á- lagningar. Einnig ætti að varða við lög að setja þau fyrirtæki í viðskiptabann, sem byggja vilja starfsemi sína á lágu álagn- ingarhlutfalli en hárri veltu. 6. Endurbót kjarasamninga og afnám vísitölubindingar. Þeim aðferðum, sem tíðkast hafa hérlendis við gerð kjara- samninga hefur mistekizt að takmarka nafnvirði launahækk- ana við það, sem samrýmst gæti eðlilegum hagvexti, en bag- vöxtur hlýtur ætíð að sníða bugsanlegri tekjuaukningu laun- þega stakk. Síðustu kjarasamningar voru aðeins eitt dæmi samninga, sem báðir aðilar viðurkenndu að væru mjög verð- bólguaukandi. Að auki tryggir tenging kaupgjalds og visitölu framfærslukostnaðar, að óhóflegar kaupkröfur, sem násl við kjarasamninga hljóta að leiða til sífelldrar verðbólgu. Ef slík tenging væri ekki til staðar, þá myndi óhófleg kauphækkun orsaka hækkun vöruverðs, sem næmi því sem umsamin kaup- hækkun væri umfram það, sem eðlilegt mætti teljast. Verð- lag myndi síðan haldast stöðugt. Áður liefur verið drepið á, að þjóðartekjur kunna nú að vera e.t.v. 25% lægri en verið liefði, ef verðbólga og verkföll hefðu ekki dregið úr hagvexti siðan 1950. Það er því augljós hagur bæði launþega og vinnuveitenda, að gerð kjarasamninga sé þannig háttað, að stöðugt verðlag sé ti’yggt og að mestu verði komist hjá verkföllum. Tillögur þær, sem hér eru settar 125

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.