Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1974, Page 35

Eimreiðin - 01.04.1974, Page 35
ÉlMREIÐlNJ árunum hafa eklci fylgl nægilegar breytíngar á skiptingu vinnu- afls á milli starfsgreina. Álirif þessa hafa verið sérstaklega slæm í hinum vmsu greinum byggingariðnaðarins, þar sem ónógur mannafli liefur orsakað miklar verðbólguaukandi yfir- horganir. Meginbreytingum á skiptingu vinnuafls verður aðeins náð á löngum tíma, og þarf þar til að koma bæði aukin tækni- þjálfun og iðnnám. Hins vegar liafa lág laun iðnnema í mörg- um greinum og óþarflega langur námstími dregið úr aðsókn ungs fólks í iðnnám. Þess vegna ætti að hækka verulega laun iðnnema og huga gaumgæfilega að styttingu námstíma. 8. Raunhæf vaxtastefna. Áður hafa verið tíunduð hin neikvæðu áhrif vaxtastefnu þeirrar, sem fylgt hefur verið á Islandi, og þá einkum í mynd sóunar fjármagns og lítils sparnaðar. í markaðskerfi eru þeir vextir einir raunliæfir, sem lántakar fást til að greiða. Þeir einir vita hvers arðs má vænta af framkvæmd þeirri, sem fjármögnuð er með lánsfé, og þar með hversu háa vexti þeir geta greitt. Ef afrakstur ákveðinna fjárfestingar réttlætir ekki greiðslu þeirra vaxla, sem tíðkast á hinum almenna lánamark- aði, þá verður ekki úr lántöku. Hins vegar eiga sparifjáreig- endur það fjármagn, sem viðskiptabankakerfið hefur til útlána, og er það reyndar eitt aðalhlutverk viðskiptabanka að hafa milligöngu um streymi fjármagns milli sparifjáreigenda og lán- lakenda. Ekki er ástæða til annars en að sparifjáreigendur fái fulla greiðslu frá lántökum fyrir notkun fjármagns þeirra, að frádreginni hæfilegri þóknun viðskiptabanka. Ríkisvaldið ætti ekki að hafa bein afskipti af vaxtakjörum viðskiptahankanna, heldur myndu þau ákvarðast af framboði °g eftirspurn fjármagns. Ef fjármálayfirvöld æskja þess að hafa áhrif á vexti á almennum markaði, þá er það auðvelt með beitingu viðeigandi hagstjórnartækja. Þar má nefna bindingu híár í Seðlabanka íslands, endurlán Seðlabanka til viðskipta- bankanna, vexti bá, sem Seðlabankinn tekur af slíkum endur- lánum, og kaup og sölu Seðlabankans á verðbréfum á frjálsum markaði. Öll þessi hagstjórnartæki hafa bein áhrif á það, hversu nnkið fjármagn er fyrir hendi til útlána; ef Seðlabankinn eyk- Ur það fjármagn með aðgerðum sínum, myndu vextir að öðru jöfnu lækka, og öfugt. Það er þvi ekki um það að ræða, að lokið yrði öllum áhrifum fjármálayfirvalda á vaxtastefnuna, þótt bein stjórn vaxta yrði afnumin, en slikt má telja grund- vallarforsendu bættrar nýtingar fjármagns í hagkerfinu. Ekki er óhjákvæmilegt, að vextir opinberra fjái'festingasjóða

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.